Við hér höfum reglulega gegnum tíðina bent fólki á hversu fáránlega ódýrt það sé að flakka um á Spáni, Portúgal, Frakklandi eða Ítalíu með því að fljúga. En það eru fleiri plúsar við að taka flugið í þessum löndum.

Hafðu hugfast að lággjaldaflugfélög á borð við easyJet og Ryanair fljúga oft ekki aðeins milli landa heldur og innan landa. Mynd Clement Alloione

Hversu ódýrt getur verið að taka flugið á Spáni svo dæmi sé tekið?

Íhugaðu þetta dæmi:

Fyrir réttu ári síðan þurfti ein úr hópnum að komast frá Valensíu til Madríd með skömmum fyrirvara. Viðkomandi nánast alltaf nýtt sér hraðlestir landsins til að komast milli helstu borga því það bæði tiltölulega ódýrt, fljótlegt og ekki síst þægilegt. Hafðu hugfast að keyrsla á milli borganna tveggja tekur þrjár stundir við allra bestu aðstæður. Hraðlestir spænska ríkisfélagsins Renfe skottast á milli á klukkustund og tuttugu mínútum þegar best lætur og kostnaður á meðalfarrými sjaldan hærra en 3500 krónur aðra leið með fyrirvara. Topp sæti, topp þjónusta og auðvitað frítt net um borð.

En í þessu ákveðna tilfelli var flogið með easyJet frá Valensíu til Madríd. Ástæðan? Jú, flugið aðra leiðina með ENGUM fyrirvara kostaði 26 evrur. Sem á þeim tímapunkti gerði 2.800 íslenskar krónur og flugið tók tæpa klukkustund.

Annað dæmi:

Annar úr ritstjórn vildi komast frá Lissabon í Portúgal til Barselóna fyrirvaralítið fyrir fimmtán mánuðum síðan en leist ekkert á fimmtán tíma rútuferð. Úr varð að kaupa fargjald með Ryanair á milli og kostnaðurinn á þeim tíma heilar 54 evrur eða tæplega sex þúsund krónur fyrir tveggja tíma flugið. 40 prósent lægra verð en að fara með rútudruslu.

Ofangreind dæmi kann mörgum að finnast fáránleg enda við vön að greiða 20 til 40 þúsund kall fyrir skitna klukkutíma ferð innanlands með Air Iceland Connect. En samkeppnin víðast hvar erlendis, og ekki síst á Spáni, er slík að flug getur oft á tíðum verið hreinn brandari. Það jafnvel þó fólk reikni með tíma og leiðindum í flugstöðvunum.

Þetta er mikið til breskum og írskum flugfélögum að þakka. Bæði Ryanair og easyJet hófu snemma að bjóða innanlandsferðir á Spáni, Portúgal, Ítalíu og Frakklandi og þarlend lággjaldaflugfélög hafa fylgt í fótsporin með tilheyrandi ánægju fyrir neytendur.

Punkturinn er þessi: með flugi er svo hlægilega auðvelt að flakka um ofangreind lönd að engu tali tekur. Alls óvitlaust fyrir forvitna þarna úti að hafa í huga ef vilji stendur til að skoða aðrar borgir og aðra staði en þessa vinsælu alltaf hreint.