Það gömul sannindi og ný að þegar hlutirnir virðast of góðir til að vera sannir er yfirleitt full ástæða til að troða veskinu enn lengra ofan í vasann en venjulega og rölta burt.

Fimmtán daga leiga á fínum jepplingi á Spáni fyrir heilar 5.800 krónur eða svo. Allt eðlilegt við það (ekki.)
Þau fjögur sem hér skrifa reglulega um ferðir og ferðalög hafa á köflum dottið um tilboð á ferðum og þjónustu á netinu sem eiga sér ekki nokkra hliðstæðu í veruleikanum.
Sem dæmi um það má nefna vikulanga gistingu á fimm stjörnu hóteli í höfuðborg Kosta Ríka með hálfu fæði fyrir sléttar 26 þúsund krónur. Flug fram og aftur frá Istanbúl til Kaíró niður í fjórtán hundruð og sjö krónur og svo þetta hér sem þú sérð hér til hliðar: Jepplingur í fimmtán daga á Costa del Sol á Spáni fyrir þá himinháu upphæð 5800 krónur. Sirka 400 kall á dag eða svo.
Hve lífið væri nú yndislegt ef ofangreind dæmi væru raunveruleg tilboð. Raunin er hins vegar sú að um var að ræða bilanir í bókunarkerfum í öllum tilvikunum. Bilanir sem fyrirtækin sem um ræðir þurfa þó oftar en ekki að standa við þegar á hólm er komið.
Eðlilegasti hlutur í heimi að grípa slíkt tilboð fegins hendi og í grænum hvelli. En þó vandamálið sé merkilega algengt er engum greiði gerður með því að vera fúll á móti þegar fyrirtækin hafa samband og biðjast vægðar vegna bilana af þessu taginu. Það er jú ekki eðlilegt, né sanngjarnt, að greiða 400 krónur per sólarhring fyrir flottan jeppling með ótakmörkuðum kílómetrafjölda. Eðlilegt dagsverð fyrir slíka leigu ætti að vera milli þrjú og sex þúsund krónur á Costa del Sol að lágmarki.
Tæknilega, í það minnsta vestanhafs og í Evrópu, getur fólk sem finnur slík tilboð og greiðir fyrir staðið hart á sínu og yfirleitt fengið í gegn. Neytendalöggjöfin er það sterk í Norður-Ameríku og Evrópu að neytendur geta vel komist upp með að greiða aðeins tæplega fimm þúsund krónur fyrir hálfs mánaðar leigu á fínum jepplingi jafnvel þó um mistök eða bilun hafi verið um að ræða hjá bílaleigunni.
En það er bara ekki sanngjarnt og sérstaklega ekki ef fyrirtækið sem um ræðir hefur haft samband og viðurkennt vandamálið. Mun betra ráð er að sýna fyrirtækinu lit en fara þó fram á duglegan afslátt ef fallið er frá upphaflegri bókun. Fyrirtækin sýna því yfirleitt lit á móti.
Hvers vegna sýna erlendum bílaleigum lit? Jú, sökum þess að ef við neytendur erum ekki heiðarleg og sanngjörn getum við ekkert kvartað þegar fyrirtækin eru ekki heiðarleg og sanngjörn gagnvart okkur…
PS: Það var einn úr ritstjórn sem leigði ofangreindan jeppling á Spáni fyrir skömmu. Leigan raunverulega tæpar sex þúsund krónur fyrir tveggja vikna leigu en eftir umleitanir frá bílaleigunni féllst viðkomandi á að greiða töluvert hærra verð sem þó var 40% lægra en hefðbundið verð á umræddum bíl. Með þeim hætti tapaði bílaleigan ekki eins hrikalega á tölvumistökum og viðkomandi fékk samt fína bifreið á kostakjörum. Win-win fyrir alla 🙂







