ÆÆÆ! Allt lítur út fyrir að Icelandair geti kvatt allan hagnað af flugi FI603 bless og farvel. Síðustu fregnir benda til að rella flugfélagsins til Toronto í Kanada lendi þremur klukkustundum og tuttugu mínútum á eftir áætlun.

Þá sjaldan við lýsum einhverju í beinni þá er það vitaskuld til að neytendur og farþegar njóti góðs af. Og allt lítur út fyrir að allir farþegar Icelandair til Toronto þetta kvöldið fái ferðina fría eða því sem næst. Svo lengi sem hver og einn leitar réttar síns.

Samkvæmt upplýsingum á vef Pearson-flugvallar í Toronto mun FI 603 vél Icelandair lenda þar klukkan 22:26 að staðartíma. Alles gut með það. Verra að rellan átti að lenda samkvæmt áætlun klukkan 18:55 að staðartíma.

Gangi það eftir mun FI603 lenda þremur klukkustundum og 31 mínútu of seint í Toronto. Sem merkir að 52 þúsund krónur bíða hvers og eins farþega sem sækja rétt sinn 😉

Auðvitað engin stórupphæð í stóru myndinni en ætti að öllu eðlilegu að dekka kostnað við flug fram og aftur til Toronto. Það því hægt að brosa út í annað allavega því þó fátt sé ömurlegra en hanga extra lengi á leiðinlegum flugvöllum þá er margt verra en fá rúmar sautján þúsund krónur á tímann við biðina 🙂