Það er að heyra að ótrúlegur fjöldi fólks telji bókunarvélina Booking alltaf vera fyrsta og besta kostinn þegar bóka á gistingu erlendis. Það nú ekki alls kostar rétt og við höfum sannanir við hendina 🙂

Merkilega margir halda að Booking.com sé upphaf og endir alls þegar bóka skal gistingu erlendis...

Merkilega margir halda að Booking.com sé upphaf og endir alls þegar bóka skal gistingu erlendis…

Við höfum ekkert sérstakt gegn Booking.com en okkur þykir miður ef fólk telur þann skattaskjólselskandi risa besta kostinn þegar panta skal gistingu erlendis. Það er nefninlega æði oft svo að Booking.com er með dýrari kostum þvert á það sem margur heldur.

Hvers vegna svo oft dýr kostur?

Jú, þóknun risans bandaríska gagnvart gististöðum er töluvert hærri en gengur og gerist annars staðar. Sem þýðir tvennt: Annars vegar að gististaðir hækka gjarnan verðið til að vega á móti þeim miklu tekjum sem fara til Booking og hitt að gestir frá Booking fá oft lélegri herbergi en aðrir vegna þess að hótelið eða gististaðurinn fær mun lægri tekjur af fólki sem kemur þaðan en frá öðrum aðilum.

Nokkur dæmi svona ef einhver efast og hafðu í huga að þegar þú bókar gistingu annars staðar en hjá Fararheill; til dæmis hjá Icelandair, Wow Air, TripCreator eða Dohop ertu að kaupa gistingu gegnum Booking.com.

Og svona til að setja traustan fót undir þessar yfirlýsingar eru hér nokkur dæmi um fáránlegan verðmun á Booking annars vegar og öðrum aðilum sem bjóða gistingu erlendis.


Fimm stjörnu Bellevue Syrene í Sorrento á Ítalíu

belle

Tveir aðilar að bjóða lægra verð en Booking þessa ákveðnu viku. Verðmunur á Booking.com og lægsta verði 16.099 krónur.


Tveggja stjörnu Hotel Pennsylvania í New York í Bandaríkjunum

Sjö aðilar að bjóða lægra verð per sams konar herbergi og Booking.com. Lægsta verð 54.572 krónum lægra en besta boð Booking

Sjö aðilar að bjóða lægra verð per sams konar herbergi og Booking.com. Lægsta verð 54.572 krónum lægra en besta boð Booking


Fjögurra stjörnu Hotel Diagonal Zero í Barcelóna á Spáni

bar

Sama herbergi, sama þjónusta, sami tími. En hjá Booking kostar díllinn 3.178 krónum meira. Meira að segja bein bókun á hótelinu kostar minna.


Fimm stjörnu The Atlantis – The Palm í Dúbai í SAF

du

Ekki nema rúmlega 42 þúsund króna munur á lægsta verði og verði Booking fyrir sama pakkann hér.


Fimm stjörnu Padma Resort á Balí í Indónesíu

ball

Vel rúmlega 24 þúsund króna verðmunur á besta boði Booking og lægsta verði hjá okkur. Það munar um minna.

Njóttu vel 🙂