Talandi um eðlilega hluti. Vissir þú að þegar þú heldur vestur um haf til Bandaríkjanna getur vel verið að samgöngustofnun landsins fylgist með öllum þínum ferðum vikum og mánuðum saman.

Á leið vestur um haf? Þá gæti einhver annar farþegi verið að fylgjast óeðlilega mikið með þér og þínum.

Upp úr dúrnum hefur nú komið að Samgöngustofnun Bandaríkjanna, TSA, rekur svo lítt beri á sérstakt eftirlit sem þekkist sem Quiet Skies innan stofnunarinnar. Í því felst að eftirlitsmenn TSA geta tekið upp hjá sjálfum sér að fylgjast grannt með gestum til landsins nánast eins lengi og þeir vilja.

TSA rekur ekki aðeins toll- og öryggisgæslu á öllum bandarískum flugvöllum. Þeir fylgjast líka með á flugi til og frá landinu. Og þyki einhverjum þú vera grunsamleg eða grunsamlegur hafa þeir leyfi til að elta þig um allt landið í tiltekinn tíma til að ganga úr skugga um að engin hætta stafi af þér.

Upp komst um eftirlitið þegar ónefndur aðili sendi fjölmiðlum vestanhafs innanhússskeyti frá TSA. Þar kom fram að í mörgum þeim rellum er fljúga til Bandaríkjanna og innan landsins situr eftirlitsaðili frá stofnuninni og sá fylgist grannt með öllum flugfarþegum hverrar þjóðar sem þeir nú eru. Viðkomandi hefur fullt leyfi til að setja þig undir smásjá allan tímann sem þú dvelur í landinu ef honum eða henni finnst eitthvað athugavert við þig meðan á flugi stendur.

Hvað gæti svo komið þér á eftirlitslista TSA? Samkvæmt vefmiðlinum FlyerTalk er mjög grannt fylgst með þeim er spássera fram og aftur í vélum. Karlmenn sem fara órakaðir á klósettið og koma rakaðir til baka þykja grunsamlegir og ef þú skiptir um föt eða klæðir þig að einhverju leyti á flugi ertu strax á válista. Ekki þykir síður grunsamlegt ef þú ert mikið að skoða farsímann þinn.

Einmitt það!

Eins og enginn hafi gripið í handfarangur til að ná í þykkari peysu sökum kulda á flugi. Eins og enginn í pissuspreng spásseri fram og aftur ef allt er að fara að góssa og löng röð á klósettið. Heldur ekki óþekkt að viðskiptafólk sjæni sig aðeins upp fyrir lendingu eftir langt flug. Og hvaða fólk undir þrítugu er ekki í símanum 24/7 ef það er á annað borð netaðgengi um borð?

Kaninn alveg að missa sig í eftirlitinu. Kannski óvitlaust að skjótast frekar austur um haf en vestur svona meðan þessi vangefni situr í Hvíta húsinu.