Dálítið skondið en við hér höfum hvergi nokkurs staðar séð umfjöllun í fjölmiðlum þess efnis að Icelandair sé beinlínis orðið lággjaldaflugfélag eins og Wow Air. Það er samt raunin og ekki hvað síst þegar flugfélagið auglýsir hraðtilboð sín eins og nú er.

Hraðtilboð Icelandair gerast sífellt betri enda fær flugfélagið nú samkeppni á flestum flugleiðum sínum. Skjáskot

Þennan daginn er nýtt hraðtilboð Icelandair í boði og það fram til morguns. Full ástæða fyrir þá sem vilja styrkja efnahag Bandaríkja Trumps að skoða tilboðin ofan í kjölin því þar má margt ágætt finna.

Til dæmis fer enginn á límingunum að punga út rétt rúmlega 35 þúsund kalli til Boston og heim aftur. Né heldur þarf yfirdrátt til að skottast til San Francisco og heim líka niður í 47.205 krónur. Það verulega vænt tilboð á átján stunda flugi báðar leiðirnar.

Mínusinn reyndar sá að hér er um sardínufarrými að ræða en á móti kemur að fólk getur hent nærum og sokkum í tíu kílóa handtösku án þess að búast við milljóna króna sekt fyrir vikið. Þá er og aðeins heimilt að fljúga í næsta mánuði vestur um haf á umræddum fargjöldum.

Við kíktum á að gamni hvað Wow Air er lægst að bjóða í september til Boston og San Francisco. Í ljós kemur að lægsta verð fram og aftur til Boston kostar rétt tæpar 40 þúsund krónur en til San Fran er komist lægst fram og aftur fyrir 34 þúsund krónur eða svo. En munurinn kannski helstur sá að Wow Air leyfir þér ekki að taka með neinn handfarangur og hvorki afþreyingarkerfi né netaðgangur í bleikum vélum flugfélagsins. Sem er verulega miður á svo löngu flugi.

Nánar hér.