Þú að bíða eftir að afi og amma lendi í Keflavík frá Tenerife til að geta náð í þau og skutlað þeim heim eins og góðu barnabarni sæmir. Þú sérð á netinu að lending er staðfest klukkan X, þú rýkur af stað út í bíl og ert fyrir utan Leifsstöð í þann mund sem gömlu hjónin trítla út. Þetta mun verða flóknara eftirleiðis.

Ísavía tilkynnir á vef sínum þennan daginn að eftirleiðis verði engar komur farþegavéla staðfestar á tímatöflu flugvallarins eins og verið hefur um langa hríð. Neibbs, nú ætlar Ísavía bara að skjóta svona gróflega á lendingartíma hverrar og einnar rellu. „Áætla” komutíma eins og markaðsfræðingar kalla það.

Einhver hefði haldið að með þeirri tækni sem flugumferðarstjórar og flugvellir búa yfir hefði aldrei verið auðveldara að „staðfesta” komutíma áætlunarvéla löngu áður en þær lenda. Og enginn vafi leikur á að það er þægilegra fyrir alla þá sem æða til Keflavíkur til að sækja ástvini eða vini úr flugi að vita upp á hár hvenær lent er. En aðeins ef það er að marka umræddar staðfestingar!

Það ekki alltaf raunin. Flugmenn og flugumferðarstjórar geta nokkurn veginn skotið á lengd flugs með góðum fyrirvara og tekið þá mið af fyrri ferðum og veðri á leiðinni. Nema að hvorki flugmenn né flugumferðastjórar  eru óskeikulir fremur en veðurfræðingar sjálfir og líkön þeirra. Dæmi um það má sjá daglega á öllum flugvöllum heims þar sem vélar eru stundum 30 mínútum á undan áætlun eða 40 mínútum á eftir áætlun og það aðeins útaf veðri og vindum.

Það meikar því ágætan sens að hætta staðfestingum sem kannski og kannski ekki ganga eftir og breyta því í ágiskanir. Þannig firrir Ísavía sig líka ábyrgð. Enginn fer mikið á límingunum ef rella lendir fyrr eða síðar ef „áætlanir” fara úr skorðum. Enda fara áætlanir almennt oftar úr skorðum en standast.