Eðlilegasti hlutur í heimi að bjóða heim nokkrum vinum og kunningjum þegar fagna á fimmtugsafmæli. Öllu súrara að bjóða hundruðum í megapartí á sama tíma og viðskiptavinir þínir fá enga eða lélega þjónustu…

Forstjórinn sem sætum stelpum. Flott stöff að halda dúndrandi partí meðan viðskiptavinir hans éta það sem úti frýs…
Milljarðamæringurinn Skúli Mogensen, eigandi Wow Air, heldur risapartí þennan daginn í Hvammsvík í Hvalfirði en þá jörð keypti kappinn með húð og hári á sínum tíma. 400 eðalvinum boðið og meira áfengi í boði en á lagernum hjá Vínbúðinni í Garðabæ.
Gott og blessað. Allir þurfa að lyfta sér upp vons in avæl.
En það skýtur dálítið skökku við að skemmta sér og djamma út í eitt þegar þínir eigin viðskiptavinir eru í standandi vandræðum með að fá tíma dagsins og hvað þá einhverja þjónustu. Svona nútímaútgáfa af Neró keisara sem spilaði sallarólegur á fiðluna sín meðan Róm brann.
Og svona ef þú heldur að við séum eitthvað að ýkja skulum við kíkja á nokkur twitter-dæmi síðustu klukkustundirnar:
















