Makaleitin ekki að gera sig hér heima? Allir að þykjast á netinu, hraðstefnumótin klúður út í eitt og blindu stefnumótin óþægilegri en missa báða fætur hægt undir jarðýtu?

Það er hægt að kynnast mörgum æði vel undir bestu kringumstæðum á ljúfri siglingu. Mynd N I C O_

Það er hægt að kynnast mörgum æði vel undir bestu kringumstæðum á ljúfri siglingu. Mynd N I C O_

Þá kannski er málið að leita út fyrir landsteina. Til dæmis að taka ljúfa lúxussiglingu um heimsins höf þar sem töluverður fjöldi gesta um borð eru einhleypir líka.

Slíkar ferðir færast í vöxt víða um heim enda gengur fólki mjög víða erfiðara og erfiðara að finna sinn rétta maka eða finna ástina. Slíkar makaferðir eru til dæmis mest vaxandi grein ferðaþjónustu í Suðaustur-Asíu og vestur í Bandaríkjunum hafa slíkar ferðir lengi notið vinsælda.

Ein slík lúxussigling sem aldeilis bragð er að er nú til sölu hjá bresku ferðaskrifstofunni Cruise Circle.

Þar er um að ræða lúxussiglingu seinnipart nóvember frá Barcelona og alla leið til Ríó í Brasilíu með stoppi á aldeilis fyrirtaks stöðum eins og Cadiz, Lissabon, Funchal og Tenerife áður en við tekur góður túr á hafi áður en lent er í Santos og Ríó og ferð lýkur.

Siglt er með hinu glæsilega Splendour of the Seas þar sem „aðeins“ er hægt að velja úr þrettán veitingastöðum, sex skemmtistöðum og einhverjum tuga bara. Fyrir utan þetta hefðbundna eins og heita potta, sundlaugar, mini-golfvöll og svo framvegis og svo framvegis.

Hluti seldra miða í þessari ákveðnu ferð er eyrnamerktur einhleypum sem fá því afslátt á hefðbundnu verði á káetu. Kosta herlegheitin þá fimmtán daga sem túrinn tekur aðeins 283 þúsund krónur miðað við miðgengi krónu gagnvart pundi í dag. Innifalið eru flug til og frá London.

Það er skrambi gott tilboð og hver vill ekki sleikja suðræna sól dögum saman á dekki á lúxusfleyi þegar dimmur nóvember breiðir út sæng sína á Íslandi. Jafnvel þó greiða þurfi aukalega fyrir flug til og frá London er þetta samt aðeins rúmlega 300 þúsund króna ferð.

Til samanburðar bauð Heimsferðir lúxussiglingu og flug með frá Brasilíu til Spánar fyrir rúmu ári síðan og verðmiðinn þá rétt tæplega hálf milljón króna miðað við tvo. Þar var reyndar um aðeins lengri ferð að ræða en engu að síður dágóður munur.

Meira hér.