Jæja! Svo þig langaði alltaf til Azoreyja en hafðir ekki efni á. En kannski er súpergott tækifæri næsta október.

Fegurð Azoreyja er alveg á pari við fegurð Íslands. Segjum og skrifum.

Ekki svo að skilja að við séum sérfræðingar í kúlturlegri landafræði, en eftir að hafa heimsótt hinar ýmsu eyjur Azoreyja í tvígang síðustu árin erum við hér sannfærð um að ekkert fólk er nær okkur Íslendingum í skapgerð og harðneskju en íbúar þessara fallegu eyja. Jafnvel þegar Færeyingar eru teknir með í dæmið.

Ekki aðeins er skapgerðin keimlík að okkar mati, það er landið líka. Mikil náttúrfegurð hvert sem farið er og sem dæmi tekur það heilar tvær mínútur með bíl að komast frá höfuðborg eyjanna, Ponta Delgada, í grænt, vænt og kostulegt landslag.

Mikið landslag á ekkert að koma vitibornu fólki á óvart. Ekkert annað landssvæði deilir því með okkur Íslendingum að vera afbrigði Atlantshafshryggsins. Bæði Ísland og Azoreyjur eru til sökum eldvirkni í miðju Atlantshafinu. Góðu heilli líka því annars værum við ekkert að skrifa þetta 🙂

Lesa má ýmislegt um eyjurnar á vef okkar og ráð að nota leitarhnappinn til að finna gott stöff. En meginástæða þess að við vildum koma Azoreyjum á framfæri núna er sú staðreynd að írska lággjaldaflugfélagið Ryanair er að bjóða á tilteknum dagsetningum í október flug fram og aftur til Ponta Delgada fyrir svo lítið sem SJÖ ÞÚSUND KRÓNUR BÁÐAR LEIÐIR frá Manchester.

Já, þú last þetta rétt. Það er hægt að fljúga með Ryanair frá Manchester í Englandi til Azoreyja og til baka fyrir það verð á allra ódýrasta farrými með ekkert innifalið. Og viti menn, til Manchester er komist þann mánuðinn fram og aftur héðan með easyJet fyrir 17 þúsund krónur lægst eða Icelandair fyrir 30 þúsund lægst.

Sem auðvitað þýðir að flug alla leið til Azoreyja frá Íslandi og heim aftur er þitt þann mánuðinn fyrir svo lítið sem 27 þúsund krónur eða svo.

Brilljant verð og til samanburðar þá kemstu varla aðra leið til Akureyrar, Ísafjarðar eða Egilsstaða fyrir þann pening þann mánuðinn. Engin samkeppni þar 🙂