Þeir segja sig mesta og besta og geyma tugmilljarða í skattaskjólum. En hvernig er Booking.com raunverulega að standa sig ef okkur langar í tvær vikur til Kanaríeyja í desember?

Ekki seinna vænna að negla gistingu á Kanaríeyjum núna. Nema þú elskir að borga meira en þú þarft…
Ein úr ritstjórn að taka verri helminginn til Kanaríeyja í tvær vikur í desember næstkomandi og aldeilis tíminn núna að negla gistingu ef fólk er að ferðast á eigin vegum á annað borð. Ástæðan einfaldlega sú að nú þegar sumri hallar fara sólþyrstir fyrst að spá og spekúlera í túrum í vetur og þá hækkar bæði gisting og flug stig af stigi langt fram á veturinn.
Og hvernig er svo hinn heimsfrægi bókunarvefur Booking.com að standa sig í því tilliti?

Dabbadona!!! Booking.com aðeins 30.718 krónum dýrari en ódýrasti kostur á hótelvef Fararheill. Ók, kannski tóm tilviljun. Prófum fleiri kosti.

Hmmm! Sama hótel, sömu dagsetningar, sami díll. Booking.com tekst samt að vera 13.810 krónum dýrari kostur. En engin leiðindi, kannski hittum við bara á þau tvö hótel sem eru undantekningin frá reglunni. Prófum aftur.

ÆÆÆ! Booking.com ekki nema 69.163 krónum dýrari kostur en það besta sem er í boði á hótelvef Fararheill. Það næstum hægt að kaupa íbúð á Kanarí fyrir þann pening. En hey, við erum sanngjörn. Kíkjum á enn eitt dæmi af handahófi á umræddum tíma í desember.

Ekki skánar það. Á hinu ágæta og vinsæla Eugenia Victoria hóteli sem margir þekkja, reynist verðmunur aðeins 37.781 króna!!! Og aðeins morgunverður innifalinn hjá Booking meðan lægri aðilinn er að bjóða hálft fæði…
Hafðu svo í huga að þegar þú bókar gistingu gegnum Icelandair, Wow Air eða Dohop ertu að versla lóðbeint við Booking.com og hefur ekkert val.
Ekki henda peningum á glæ.







