Gott að hafa þybbinn, latan sveitakall í stóli samgönguráðherra landsins. Það er að segja gott fyrir fyrirtæki sem vilja forðast í lengstu lög að greiða eyri í bætur vegna tafa og vesens flugfarþega.

Sigurður Ingi „einhvers staðar verður að geyma peningana” Jóhannsson, samgönguráðherra, ekkert að flýta sér að koma til móts við þá sem vilja bætur frá íslensku flugfélögunum.
Lesa má á Twitter þennan daginn skeyti einstaklings sem vill fá að vita hvort að krafa um skaðabætur eftir ellefu klukkustundu seinkun vélar Wow Air sumarið 2016 sé dottin dauð niður.
Krafan atarna var staðfest af Samgöngustofu á sínum tíma en þegar það gerist hafa flugfélög aðeins einn kost eftir til að fá kröfum hnekkt; að leita til samgönguráðuneytisins þar sem sérfróðir menn eiga að gefa lokadóm í málinu.
Það var einmitt það sem Wow Air gerði sem varð til þess að krafan fór fyrir úrskurðarnefnd
samgönguráðuneytisins. Þar datt milljarðamæringurinn Mogensen í lukkupott því nefndin atarna, undir stjórn Sigurðar Inga, hefur mögulega kveðið upp öndina en alls engan dóm síðan 23. júní árið 2017!!!
Þetta merkir einfaldlega að flugfélögin geta bara véfengt alla neikvæða úrskurði Samgöngustofu vitandi að samgönguráðherra er of bissí að bora í nefið til að koma úrskurðarnefnd úr dái. Því lengur sem það tekur þá nefnd að komast að niðurstöðu því minna þurfa flugfélögin að punga út til súrra viðskiptavina.
Þess vegna er viðkomandi einstaklingur, sem þurfti að dúsa í ellefu klukkustundir á leiðinlegum flugvelli vegna vandræðagangs Wow Air árið 2016 enn að bíða tæpum tveimur árum síðar.
Bananalýðveldi punktur is.







