Líklega það allra versta sem komið hefur fyrir vestrænan heim frá upphafi alda, en það má Donald Trump þó eiga að á nýjan leik kostar ekki formúgu fjár að gista á Kúbu.

Tilkoma tugþúsunda Bandaríkjamanna jók verðlag á gistingu á Kúbu um tugi prósenta. Nú hefur það að mestu gengið til baka.
Trump, sem kunnugt er, dró að stórum hluta til baka frjálsar ferðir Bandaríkjamanna til Kúbu fyrr á árinu, og þó heimamenn á eynni missi auðvitað af feitum seðlum feitra Bandaríkjamanna þá hefur verð á hótelgistingu á Kúbu lækkað um tæp 40 prósent fyrir vikið.
Það súper jákvætt fyrir þau okkar sem elska þessa sólríku og sósíalísku eyju. Það var nefninlega svo að í kjölfarið þiðnunar samskipta Kúbu og Bandaríkjann í tíð Barack Obama þá hækkaði verð á gistingu á eynni duglega um leið og þrjú stór bandarísk flugfélög hófu reglulegt áætlunarflug til og frá. Það átti sínar eðlilegu skýringar enda eftirspurn töluvert meira en framboð á vinsælum stöðum á Kúbu þegar í einu vetfangi við bættust tugþúsundir Bandaríkjamanna við þann fjölda erlendra gesta sem heimsækja landið árlega.
En lygaplebbinn og skítpésinn Trump þurfti aðeins fimm mínútur til að setja aftur fjólublátt bann á ferðir til Kúbu og ferðamönnum frá Bandaríkjunum til Kúbu hefur á ný fækkað nánast niður í ekki neitt.
Það aftur hefur auðvitað slæm áhrif á ferðaþjónustu landsins en góðu heilli fyrir okkur utan Bandaríkjanna er verðlag á gistingu nú aftur á ná „eðlilegu” stigi.
Til marks um það kostaði nótt á fínu fjögurra til fimm stjörnu hóteli í Havana síðasta vetur 26 þúsund krónur að lágmarki samkvæmt hagstofu Kúbu. Þegar þetta er skrifað hefur prís per nótt á sömu hótelum fallið niður í 16 þúsund krónur að meðaltali. Sem merkir auðvitað að dvöl á eynni er á nýjan leik á viðráðanlegu verði fyrir okkur meðalplebbana.
Og svona ef einhverjum dytti í hug að hamra á okkur fyrir að gleðjast yfir neikvæðum hlutum á Kúbu þá er raunin sú að við erum ekkert að gleðjast yfir einu né neinu. Yfir 90 prósent betri hótela á Kúbu eru í eigu erlendra aðila, oftast spænskra og franska, og meðaljón og meðalgunna á eynni njóta þess lítt að verð hækki um hundruð prósenta á augabragði. Það franskir og spænskir sem maka krókinn. Ekki meðaljuan og meðaljuanita…







