Eins mikið og við hér mælum með ferðum til hins kostulega Egyptalands þá er engum blöðum um að fletta að stjórnvöld þessa lands eru alvarlega vangefin. Þau gera alvöru úr því að fangelsa ferðamenn sem dirfast að gagnrýna landið á samfélagsmiðlum.

Móna tjáði sig fullum hálsi um depurð og þvælu í Egyptalandi. Og fékk átta ára fangelsisdóm fyrir vikið…
Lífið verður lítt spennandi næstu átta árin fyrir hina líbönsku Monu el-Masbouh. Hún þarf að gjöra svo vel að gista í fangaklefa í Kaíró þann tíma sökum þess að hafa dirfst til að tjá sig um ferðalag sitt um Egyptaland á samfélagsmiðlum.
Móna var svo sem ekkert að spara stóru orðin í pistli sem hún birti á YouTube þegar að för hennar til Egyptalands var að ljúka. Hún var rænd, gekk hvergi um án þess að fá glósur og eða fúkyrði frá karlmönnum og leigubílstjórar reyndu iðulega að svindla á henni eins og kostur var.
Allt ofangreint tiltölulega eðlilegur hlutur fyrir ferðamenn í landinu af báðum kynjum. Allir reyna að svindla pínulítið á þér og satt er að ungar konur ganga ekki víða um án þess að fá alvarlega og neikvæða athygli heimamanna.
En því miður fyrir Mónu þá ljáðist henni að lesa lög landsins áður en hún póstaði myndbandi sínu á samfélagsmiðlum. Það er nefninlega lögbrot að gera lítið úr Egyptum eða landi þeirra á opinberan hátt. Og Móna birti myndband sitt ÁÐUR en hún yfirgaf landið eftir ferð sína. Hún því stoppuð á flugvellinum og þarf að kalla skítlegt fangelsi heimili sitt næstu átta árin.
Príma mál að opna sig um kjánahátt og lélega þjónustu í erlendum löndum öðrum til viðvörunar. Er þjóðráð að gera það eftir að heim er komið og ekki meðan á dvölinni stendur 😉







