Þegar maður heldur að hlutirnir gerist ekki verri þá gerast þeir verri. Nú hafa samgönguyfirvöld í Bandaríkjunum aukið enn á raunir flugfarþega og nú þeirra sem stinga einhverja bitastæðu með sér í handfarangri. Allt slíkt er nú grandskoðað vestanhafs.

Einmitt það sem við þurftum: meiri tafir og vesen á flugvöllum.
Eftirleiðis mega þeir sem stinga snakkpoka, banana eða gúmmelaði öðru í handfarangur fyrir brottför eiga von á enn frekari töfum við öryggisleit vestanhafs í Bandaríkjunum. Ný regla Transportation Security Administration, TSA, kveður nú á um að skanna aukalega allt gotterí sem flugfarþegar hafa meðferðis í handfarangri.
Sem fyrr er ástæðan öryggi að því að sagt er og í þessu tilfelli sérstaklega að eftirlitsskannar á flugvöllum geta ekki greint á milli sprengiefnis annars vegar og kassa af hraunbitum hins vegar.
Sem fyrr er það aðeins í Bandaríkjunum sem gotterí verður að grandskoða nánar meðan önnur ríki heims láta sér fátt um finnast. En á móti kemur auðvitað að Kaninn, ekki síst með tilkomu örvita á forsetastól, gerir usla og leiðindi víða um heim og margir eiga harma að hefna.
Það því hægt að færa rök fyrir að þetta gæti verið gott mál en mótrökin auðvitað þau að flugferðir almennt orðnar töluvert basl og leiðindi og þetta bætir töluvert á leiðindin.







