Sæll Andri Már. Okkur hér er spurn hvers lags já-fólki þú hefur safnað saman kringum þig hjá Primera Air. Fyrir skömmu bárust fregnir þess efnis að flugfélag þitt hefði hætt við allt flug vestur um haf frá Birmingham á Englandi. Það var fyrirséð strax síðasta haust.

Primera Air nú fellt niður ALLAR flugferðir frá Birmingham til Bandaríkjanna. Það kemur verulega á óvart. Ekki… Mynd Visit Birmingham
Samkvæmt fréttatilkynningum frá Primera Air er það flugvélaframleiðandanum Airbus að kenna að Primera Air hefur fellt niður ALLAR ferðir frá Birmingham í Bretlandi vestur um haf en mikil herferð flugfélagsins á síðasta ári lofaði þráðbeinum flugferðum á verði sem áður hefur ekki þekkst. Airbus hefur ekki staðið við að afhenda þotur til Primera Air á réttum tíma.
Markaðsmaður ársins 2007 á Íslandi ætlaði þannig að breyta litháíska flugfélaginu Primera Air úr 10/11 í Bónus með því að negla einn stærsta markað á Bretlandseyjum í þráðbeinu flugi til Bandaríkjanna. En eins og við greindum frá í febrúar gekk það illa og nú hefur öllu flugi vestur um haf frá Birmingham verið slátrað.
Allt þetta á pari við það sem við spáðum í febrúar síðastliðnum. Í Birmingham, annarri fjölmennustu borg Bretlands, eru múslimar fjölmennari en aðrir þjóðfélagshópar og þó þeir séu almennt jafn ferðaglaðir og aðrir kynþættir á plánetunni þá eru múslimar ekkert sérstaklega velkomnir til Bandaríkja Trump. Þvert á móti eiginlega; þeir eru óvelkomnir.
Þetta svona svipað prógramm og bjóða Róhingjum kostakjör á flugferðum til Búrma.
Endilega hengja fleiri verðlaun á eiganda Primera Air…







