Seint virðist þjónustudeild Icelandair ætla að átta sig á hvað þjónusta þýðir og merkir. Hvergi finnst stafur á vef eða samfélagsmiðlum um ástæður þess að tveimur flugferðum flugfélagsins var aflýst þennan daginn.
Eins og sjá má hér til hliðar féllu tvær flugferðir Icelandair niður þennan ágæta dag. Annars vegar flug til Íslands frá Helsinki í Finnlandi og hins vegar flug til Íslands frá New York í Bandaríkjunum.
Hvergi er að finna ástæður þessa á vef Icelandair og né heldur er hægt að glöggva sig á ástæðunum á samfélagsmiðlum. Það nánast eins og Icelandair vilji ekki að neinn viti að aflýsingar eru orðnar reglulegt vandamál hjá flugfélaginu. Ekki daglegt brauð kannski en því sem næst.
Það þarf þó enga fræðinga til að skjóta á að flugfélag fellir ekki niður ferðir sísona nema brýn nauðsyn sé til og hjá flugfélagi flokkast aðeins bilun sem brýn nauðsyn. Það er jú ekki eins og ofsaveður hafi riðið yfir bæði Helsinki og New York þennan daginn. Né heldur var sérstaklega slæmt veður í Keflavík.
Það segir líka sitt að hvergi má finna frekari upplýsingar um aflýsingarnar. Það bendir sterklega til að forsvarsmenn hafi eitthvað að fela. Getur verið að tvær mismunandi vélar Icelandair hafi bilað sama daginn? Miðað við aldur og leyndina er það kannski ekki svo fráleitt…







