Það má segja að það sé af sem áður var í borginni. Gisting er almennt orðin dýrari en áður var raunin, ýmis afþreying er sömuleiðis orðin töluvert dýrari en fyrir fáeinum árum og það eru miklu, miklu fleiri ferðamenn á svæðinu en ég hef nokkurn tímann orðið vitni að. Þetta partí er að verða búið.

Yfirvöldum í Tælandi virðist loks alvara með að stemma stigu við vændi á vinsælum ferðamannastöðum í landinu. Sumum finnst það öllu verra. Skjáskot Vice
Svo segist Íslendingi sem um þrettán ára skeið hefur sótt Pattaya í Tælandi heim í einn til tvo mánuði hvern einasta vetur og lifað þar í vellystingum enda nánast allt í landinu að minnsta kosti helmingi ódýrara en heima á farsæla Fróni og margt töluvert ódýrara en það.
Maðurinn, sem ekki vill láta nafn síns getið en við köllum Palla, viðurkennir fúslega að sækja Pattaya heim sérstaklega vegna stúlknanna á svæðinu auk ljúfs veðursins en Pattaya er sem kunnugt er heimsfrægur vændisstaður og talið er að minnsta kosti sjö milljónir karlmanna dvelji í borginni á ársgrundvelli með það sérstaklega í huga að njóta vinskapar vændiskvenna. Það er rúmlega helmingur þeirra þrettán milljóna ferðamanna sem Pattaya heimsækja árlega samkvæmt opinberum tölum.
Til að sinna þessum sjö milljón einmana karlmönnum eru 28 þúsund vændiskonur að störfum í Pattaya og flestar hafa nóg að gera sé tillit tekið til framboðs og eftirspurnar. Þetta þýðir 250 karlmenn á hverja vændiskonu á ársgrundvelli.
Hér fyrir tíu árum gat hver vestrænn ferðamaður valið úr vandræðalaust með því einu að heimsækja næsta bar eða skemmtistað segir Palli. En tvennt sérstaklega hefur breytt þessu og það skarpt síðustu tvö til þrjú árin segir hann.
Annars vegar hefur kínverskum ferðamönnum fjölgað ótrúlega á skömmum tíma. Fyrir átta árum sást enginn Kínverji í borginni en nú eru þeir alls staðar og allir með skítnóg af peningum og koma hingað sérstaklega til að njóta annarra kvenna en sinna eiginkvenna.
Hins vegar hófu tælensk stjórnvöld sérstakt átak í vetur til að breyta þessari heimsfrægu ímynd Pattaya sem kynlífsstað á heimsmælikvarða. Tælendingar hafa lengi skammast sín fyrir frægð borgarinnar um heim allan en sökum þess hve mikið landið reiðir sig á peninga ferðafólks hafa efndir verið litlar. En allt í einu í vetur var vart gengið um hina frægu göngugötu Walking Street án þess að rekast á lögregluþjóna. Öll mín ár í borginni hingað til hefur það þótt til tíðinda að sjá lögregluþjón og hvað þá á Walking Street en nú fjölmenna þeir öll kvöld og nætur og reka fáklæddar konur óhikað burt af götunni.
Það sem „Palli” vísar hér til er opinber tilskipun forsætisráðherra landsins á síðasta ári þess efnis að Pattaya sé syndabæli sem þurfi að gjörbreyta til hins betra. Vændi hefur alltaf verið ólöglegt í landinu en þrifist vegna þess að lögregla aðhefst ekkert. Á því hefur orðið breyting og ekki aðeins í Pattaya heldur á velflestum helstu ferðamannastöðum landsins. Enn sem komið er beinir lögregla spjótum sínum að vændiskonunum en ekki ferðamönnum en það gæti breyst innan tíðar.
Eins dásamlegt og mér finnst að koma hingað hvert einasta ár þá er engin spurning að ýmislegt er að breytast í Pattaya og til hins verra finnst mér. Ekki það að mér finnist vændi eitthvað sérstaklega jákvætt heldur hitt að hópar lögreglu við helstu skemmtistaði hvert einasta kvöld er til þess fallið að eyðileggja þá skemmtilegu stemmningu sem hefur alltaf fundist í Pattaya.







