Fátt verra en alvarleg veikindi í siglingu. Enginn kemst frá borði á miðju ballarhafi, sjóriða og sjóveiki getur margfaldað áhrif veikindanna og oftast nær fást engin svör um nákvæmar orsakir sýkinga. Plús auðvitað að siglingin er ónýt.

Það virðist óyfirstíganlegt að koma í veg fyrir alvarleg veikindi um borð í skipum Royal Caribbean. Mynd Hamburg Hafen
Öllu verra þegar tugir og jafnvel hundruðir sýkjast í einu vetfangi um borð eins og hefur nú gerst þriðja mánuðinn í röð hjá hinu vinsæla skipafyrirtæki Royal Caribbean. Fyrr í vikunni þurftu 50 gestir um borð í Grandeur of the Sea að leggjast í rúmið með matarsýkingu og skipafélagið í kjölfarið að breyta siglingaráætlun til að koma fólki undir læknishendur.
Gott og blessað. Slysin geta jú komið fyrir alls staðar og ekki síst hjá risastórum skipafélögum sem greiða að mestu lágmarkslaun fyrir eldhús- og veitingastaffið.
En því fer fjarri að um einangrað tilvik sé að ræða. Rétt fyrir síðustu jól fengu 330 viðskiptavinir um borð í Independence of the Sea skipi Royal Caribbean svæsna magakveisu. Einum mánuði áður lögðust 200 viðskiptavinir Royal Caribbean til viðbótar í koju með kveisu í miðri ferð.
Það gerir veikindi í siglingu enn súrari en ella að það getur verið næsta vonlaust að sækja bætur af nokkru tagi. Sönnunarbyrðin er svo þung að flest skipafélög með stóran hóp lögfræðinga á sínum snærum fara yfirleitt létt með að sleppa frá slíkum kröfum og það jafnvel þó fleiri hundruðir sýkist á svipuðum tíma. Það getur jú enginn útilokað að orsökin liggi til dæmis hjá einum farþeganna sem kom sjúkur um borð.
Einhverjar kortatryggingar og sérstakar ferðatryggingar dekka að hluta veikindi í ferðum erlendis og þar með töldum skipaferðum. En þar líka er krafa yfirleitt sú að viðkomandi þurfi að hafa legið rænulaus yfir helming þess tíma sem ferðin tók til að geta átt von á einhverjum bótagreiðslum.
Með tilliti til þessa er kannski óvitlaust að einbeita sér að siglingum með öðrum aðilum en Royal Caribbean svona næstu misserin.







