Yfirvöld á portúgölsku eynni Madeira breyttu fyrir tveimur árum nafni flugvallar eyjunnar í höfuðið á fótboltastjörnunni Cristiano Ronaldo enda kappinn þaðan. En margt bendir nú til að Ronaldo verði innan tíðar fundinn sekur um gróf skattsvik. Þá verður nafn flugvallarins einn stór brandari.

Cristiano Ronaldo flugvöllurinn á Madeira. Nafnið gæti orðið til trafala innan tíðar.

Kapp er best með forsjá og má til sanns vegar færa í tilviki eyjaskeggja á Madeira sem elska svo frægan soninn að óvíða er stigið niður fæti án þess að sjá nafn Ronaldo eða líkneski. Styttur af hetjunni finnast bæði í flugstöðinni og á besta stað í höfuðborginni Funchal. Í borginni er líka þetta fína vaxmyndasafn tileinkað stjörnunni, annað safn um uppvöxt og ævi kappans og það þriðja þar sem margir titlar og verðlaun Ronaldo eru til sýnis. Já og svo er verið að reisa tvö hótel á eynni undir merkjum Portúgalans líka.

Svo sem gott og blessað. Þetta er jú langfrægasti Portúgalinn síðan Eusebio var og hét. Nema kannski vegna þess að æði sterkar líkur eru taldar á að Ronaldo verði á næstunni formlega ákærður fyrir gróf og alvarleg skattabrot og verði karl fundinn sekur gæti hann þurft að dúsa ein sjö ár bak við lás og slá. Þá verður dulítið skondið að fljúga til og frá Aeroporto Madeira – Cristiano Ronaldo.

Um þetta má lesa í grein spænska dagblaðsins El Mundo en fyrir þá sem ekki eru sleipir í spænsku er þjóðráð að kíkja á ítarlega úttekt Der Spiegel á ensku.