Hvað ef roskinn, þybbinn karlmaður situr við neyðarútgang í farþegavél á leið frá Alicante heim í föðurhúsin? Á maður að gera athugasemd og skapa vesen eða láta sem vind um augu þjóta og komast svo kannski ekki út ef rellan brotlendir?

Ólíklegasta fólk kaupir þægilegustu sætin við neyðarútganga og enginn segir neitt.
Óhætt er að fullyrða að flugfélögin flest eru farin að beygja og sveigja lög og reglur eins og strá í vindi þessi dægrin. Sætisbil þrengra en nálarauga svo enginn kemst út í neyðartilvikum á 90 sekúndum eins og lög gera ráð fyrir. Öllum orðið bannað að neyta eins né neins um borð sem ekki er keypt um borð með sex þúsund prósenta álagningu. Og nú virðist orðið í lagi að þybbið fólk og roskið geti plantað rassi við neyðarútgang án þess að flugþjónar blikki svo mikið sem einu auga.
Einn úr ritstjórn smellti sér heim á leið með Primera Air rétt áður en það flugfélag dó drottni sínum. Allt gekk eins og í sögu ef frá er talið að við annan neyðarútganginn yfir væng vélarinnar sat þessi ábúðarfulli, roskni og vel þokkalega þybbni einstaklingur og lét fara vel um sig.
Alas, ekkert að því að vera roskinn, þybbinn né ábúðafullur svona heilt yfir ef fólk kýs og vill. Nema kannski að slíku fólki á lögum samkvæmt ekki að vera heimilt að sitja við neyðarútganga áætlunarvéla. Þar má lögum samkvæmt aðeins sitja vel hraust fólk sem „treystir sér fullkomlega til að aðstoða aðra farþega við að komast út um neyðarútgang ef þurfa þykir.“ Með öðrum orðum; þeir sem sitja við neyðarútganga farþegavéla verða að vera í stakk búnir til að opna neyðarútgang í neyðartilfellum í grænum hvelli og taka svo til við að aðstoða alla aðra við að komast út.
Ekkert skal fullyrt um hvort umræddur maður hefði almennt komist út á eigin spýtur en það virtist hæpið miðað við vaxtalag og aldur. Í öllu falli voru litlar sem engar líkur á að umræddur maður hefði getað staðið keikur og aðstoðað hina tvö hundruð farþegana í neyð.
Stór galli við að allt sé orðið til sölu hjá flugfélögunum þessi dægrin. Flugþjónar varla að henda fólki úr sætum sem greitt hefur extra fyrir. Öryggi okkar hinna minnkar til muna…







