Enginn þarf lengi að staldra við á bandarískum ferðavefum sem öllu fögru lofa til að gera sér grein fyrir að flagð er oftast nær undir niðri hjá Kananum. Það auðvitað helgast af því að Kaninn lætur auðveldlega plata sig og sína. Ronald Reagan, George W. Bush og Donald Trump eðaldæmi um það.

Þeir segjast leita hjá yfir 200 ferðaþjónustuaðilum að hentugu hóteli. Hvers vegna fáum við aldrei nema fjóra til fimm aðila þegar við leitum? Skjáskot
Við höfum oft og ítrekað bent ykkur á svínarí bandaríska bókunarvefsins Booking sem þykist mestur og bestur en er oft allt annað og verra þegar allt kemur til alls. Við þurfum ekki að benda ykkur á svindl og svínari bandaríska vefmiðilsins Facebook sem selur og jafnvel gefur persónulegar upplýsingar um þig og þína án þess að blikka auga. Heldur ekki bent ykkur á að rafbílar Tesla þykja þeir allra verstu í bransanum. Við gætum haldið áfram en þar sem Fararheill er ferðavefur er mál að hætta.
Okkur langaði þó að benda ykkur á falsheit eins stærsta ferðamiðils heims. Ferðamiðils sem, merkilegt nokk, er bandarískur: Tripadvisor.
Skjáskotið hér fyrir ofan er það sem þú sérð á forsíðu Tripadvisor. Þar segjast bændur leita að allra ódýrustu gistingunni fyrir þig og þína hjá YFIR 200 AÐILUM. Það frábært. Samasemmerki er milli fleiri valmöguleika og lægra verðs fyrir sömu vöruna. Nema er vera skyldi að við leit birtir Tripadvisor sjaldan fleiri en fjóra valmöguleika…

Leitað á yfir 200 vefmiðlum en aðeins tveir uppgefnir??? Er það ekki pínu undarlegt?
Við gerðum leit að hinum ýmsu hótelum á hinum ýmsu tímum af tómu handahófi á vef Tripadvisor. Einhver gæti haldið að vefur sem skoðar verð hjá YFIR 200 AÐILUM gæti sýnt fram á raunverulega mismunandi verð á gistingu þessa nóttina eða hina. Það reynist ekki raunin.

Hmmm. Flott vinsælt hótel á besta stað á Tenerife og af TVÖ HUNDRUÐ AÐILUM sem leitað er hjá eru að þrír kostir í boði???
Skoðum til dæmis valmöguleikana á 9 daga gistingu á Hotel Golf Alicante 20.-29. apríl síðastliðinn hjá Tripadvisor. Þá kom þetta í ljós það sem við sjáum hér til hliðar. Aðeins tveir aðilar með tilboð og þar af annar Tripadvisor sjálfur. Hinn aðilinn er „sérstakur“ viðskiptaaðili Tripadvisor, Booking.com. Ótrúleg tilviljun að verðið er nákvæmlega hið sama hjá báðum.
En hvar eru hinir 198 plús aðilarnir sem Tripavisor segist leita hjá?
Ók, prófum aftur. Í þetta skipti vinsælt hótel á Tenerife í maí.
Enn og aftur er Tripadvisor og Booking.com með nákvæmlega sama verð á gistingunni. Upp á krónu. Sem bendir til þess að það sé í raun og veru Booking.com sem sér um hótelbókanir fyrir hönd Tripadvisor.
Þó er hér þriðji aðilinn, hið bandaríska hotels.com, og þeir með sama herbergi, sömu nótt á 400 krónum lægra verði.

Það var og. Geysivinsælt hótel á besta stað í New York um áramótin og enn og aftur eru aðeins þrjú tilboð af rúmlega 200 talsins talin nógu merkileg til að birta…
En aftur er það langforvitnilegasta að Tripadvisor birtir aðeins ÞRJÁ aðila af rúmlega tvö hundruð sem þeir segjast leita hjá???
Eru hinir 297 aðilarnir svo dýrir að það borgar sig ekki að birta þeirra tilboð?
Ók, gefum Tripadvisor smá svigrúm. Leitum nú að vinsælu hóteli í New York vikuna milli jóla og nýárs sem er æði vinsæll tími til að heimsækja stóra eplið svokallaða. Hvað kemur þá í ljós?
Það var og. Sérstakur „samstarfsfélagi“ Tripadvisor með lægsta verðið og auðvitað Tripadvisor sjálfir með nákvæmlega sama verð í boði. Tilboð eins annars aðila sýnt en það dýrara. En hvar eru hinir 197 aðilarnir sem Tripadvisor þykist leita hjá?
Aðeins þrjú dæmi af handahófi en vitiborið fólk sér alveg hvað við erum að fara með þetta. Ef Tripadvisor væri raunverulega að leita að lægsta verði hjá yfir tvö hundruð mismunandi aðilum er aldeilis fráleitt að þeir sjálfir og „sérstakur“ samstarfsaðili þeirra sé alltaf efstur á blaði og með lægsta verðið.
PS: Prófaðu að leita á hótelvef Fararheill á sömu dagsetningum og hér að ofan. Sjáðu hvað kemur í ljós 😉







