Úffffffff! Það líður að því að við verðum að reiða okkur á flugferðir með Icelandair til að komast lengra af klakanum en til Vestmannaeyja. Velflest erlend flugfélög að takmarka til muna flug til og frá landinu og í apríl hendir easyJet tveimur áfangastöðum fyrir róða.

EasyJet hefur hægt og bítandi fækkað áfangastöðum í beinu flugi frá Íslandinu góða. Brátt fækkar tveimur stöðum til viðbótar. Mynd Clement Alloione

Undanfarin ár hefur breska lággjaldaflugfélagið verið borubratt á Íslandsmiðum og boðið upp á áfangastaði sem við fyrstu sýn virðast ekki ávísun á húrrandi hagnað. Staði eins og Zurich, Bristol og Belfast.

Zurich er að detta úr skaftinu strax í febrúarmánuði og samkvæmt flugáætlun easyJet héðan á þessu ári eru engar flugferðir til Belfast eða Bristol í boði frá og með aprílmánuði. Flugfélagið er að henda þremur áfangastöðum sínum héðan út í hafsauga.

Þetta hræðileg þróun. Einhver hefði getað haldið að með falli Primera Air og Wow Air opnuðust feit tækifæri fyrir önnur flugfélög til og frá landinu. Það virðist ekki raunin samkvæmt þessu.