Það er ekki á hverjum degi sem flaggflugfélag Bretlands, British Airways, býður fargjöld sem jafna og toppa fargjöld helstu lággjaldaflugfélaga heims. En það er raunin þessa stundina.

Sjaldan áður, ef nokkurn tímann, hefur verið hægt að fljúga frá London til Dúbaí fyrir 20 þúsund kall og það með tösku meðferðis. Það er hægt núna 🙂
Fjörutíu þúsund krónur koma okkur Frónbúum ekki ýkja langt flugleiðis fram og aftur þegar farangur er með í för. Það er engu að síður prísinn sem þú greiðir ef þig langar að heimsækja Dúbaí í Sameinaða arabísku furstadæminu með British Airways og taska, afþreying og matur INNIFALINN!!!
Hreint brilljant verð á tiltölulega löngu flugi til Persaflóans og vel þess virði að skoða nánar fyrir áhugasama Íslendinga.
Við auðvitað þurfum að koma okkur til London til að grípa gæs en það er hægðarleikur enda mikil samkeppni þá leiðina og samkvæmt nettri úttekt okkar má finna þessi lágu fargjöld BA til Dúbaí alveg fram í september.
Ekki viss hvort Dúbaí sé málið? Kíktu á vegvísi okkar um borgina hér.







