Vitum ekki hvort fólk almennt hefur tekið eftir því en lægstu fargjöld Wow Air hafa verið að lækka nokkuð síðustu misserin. Svo mjög reyndar að nú getur verið góð hugmynd að smella sér til London eða Edinborgar og greiða fyrir með klinki – í orðsins fyllstu.

Ekki kaupa þetta með 4.999 krónurnar. Það helber lygi. Ofan á það bætist „bókunargjald“ nefninlega…
Ók, það kannski full lítið gert út litlu krónunni að kalla fimm til sex þúsund kallinn klink. En það er ekki eins og sex þúsund kallar borgi mikið hér á klakanum. Það dekkar sæmilegan mat fyrir einn með einu glasi af sæmilegu víni á sæmilegum veitingastað..
Wow Air, hvers allra lægstu fargjöld undanfarin ár hafa verið kringum átta til tíu þúsund kall býður nú flug aðra leið til London eða Edinborgar næstu mánuði niður í 5.999 krónur per kjaft. Það nokkuð príma þó reyndar ekkert sé innifalið, ekki einu sinni handfarangurstaska.
En hver þarf svo sem farangur í þrjá til fjóra daga í London eða Edinborg? Nema hugmyndin sé beinlínis að versla út í eitt er engin þörf á því. Hendið bara nærum og sokkum tveimur dögum eftir komu og kaupið nýtt og allir sáttir. Við eigum öll allt of mikið af dóti og drasli hvort sem er 😉
Reyndar er örlítið dýrara að snúa heim aftur frá London og Edinborg samkvæmt bókunarvef Wow Air. En það smotterí. Fram og aftur án farangurs fyrir 20 kallinn sleppur fyrir okkur hér 😉







