Svo þig hefur alltaf dreymt um að vera meðal áhorfenda þegar skærustu stjörnunar í golfinu etja kappi í Ryder-bikarkeppninni? Þá er málið að hafa afar hröð handtök og feita buddu.

Í lok september fer fram keppni bestu kylfinga Evrópu móti bestu kylfingum Bandaríkjanna og það á sérdeilis frábærum stað.
Íþróttaunnendur gætu átt verra ár en það sem nú líður dag frá degi. Ólympíuleikarnir nýliðnir, heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu framundan og svo golfaðdáendur verði nú ekki útundan fer 42. Ryder-bikarkeppnin fram í haust og það ekki á amalegri stað en í grennd við París Frakklandi.
Ekki þarf að tíunda fyrir golfáhugafólki hvað Ryder-bikarkeppnin er. Þetta er efalítið frægasta og skemmtilegasta golfmót sem haldið er en það fer fram á tveggja ára fresti og leikið er til skiptis í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta árið, 25. – 30. september, fer mótið fram í Frakklandi og er það í fyrsta sinn sem „Ryderinn“ er haldinn annars staðar en í Bretlandi.
Við hér fengum fyrir viku beiðni um aðstoð við að verða tveimur einstaklingum úti um miða á keppnina í Frakklandi og fórum strax í málið. Báðir fá miða en báðir þurfa að greiða fúlgur fyrir og ef einhver þarna úti er áhugasamur er málið að negla miða núna en ekki á morgun. Eftirspurnin langt, langt umfram framboð.

Lágmarksverð lokadaginn á Ryder-bikarkeppnina í haust. Skjáskot
Við negldum miða fyrir viðkomandi einstaklinga en aðeins lokadaginn, sunnudaginn 30. september, og það bara einfaldan miða og kostnaðurinn fyrir þann pakka litlar 202 þúsund krónur á haus. Vissulega lokadagurinn á mótinu en viðkomandi eiga eftir að negla hótel í grenndinni og flug auðvitað líka svo lágmarks kostnaður við þennan eina dag verður vart undir 300 þúsund krónum á kjaft.
Það svo sem ekki endalok heimsins. Þetta er jú einstæður atburður og þótt gaman sé að fylgjast með í sjónvarpi er það tómt hjóm samanborið við að vera á staðnum í eigin persónu.
En við tókum líka eftir að þó enn séu næstum sjö mánuðir í viðburðinn eru nánast allir miðar alla dagana að verða uppseldir. Það er að segja nema þú hafir áhuga að taka „hospitality“ pakka sem felur í sér gistingu, skutl, miða, frítt áfengi og borð á veitingastað með útsýn yfir hitt og þetta grínið á vellinum. Það geturðu líka neglt fyrir rúmlega 200 þúsund krónur á mann en þá er líka miðað við að ÁTTA manns séu í grúppunni.
Hver selur svo löglega miða? Jú, einungis gegnum opinbera vefsíðu Ryder-bikarsins er hægt að fá miða sem sannarlega koma þér inn á svæðið. Nánar um það hér. Það eru fleiri aðilar þarna úti sem þykjast geta selt þér miða en við höfum reynslu af kaupum af öðrum aðilum á fyrri mótum og þar stóð ekki steinn yfir steini þegar til kom.







