Lesendum er vel kunnugt um ást okkar á Portúgal og sömuleiðis hve oft við höfum rifið hár okkar og skegg yfir því að þangað er yfirleitt vonlaust að komast í beinu flugi. Nú er þó tækifæri til ef aðrir en við hér þrá portúgalska sól og menningu umfram þá spænsku.

Allfínt flugtilboð til Algarve hjá Vita þessi dægrin. Skjáskot
Ferðaskrifstofan Vita hefur um tíma verið að bjóða bæði pakkaferðir og flug eitt og sér til Faro í Portúgal en það er miðpunktur hins fræga héraðs Algarve með yndislega bæi og borgir á við Lagos, Sagres, Albufeira, Vilamoura og Tavira.
Pakkaferðirnar sem í boði eru hreint ekki slæmar og verðlagning bærileg en stóri plúsinn hér sá að einnig er í boði að kaupa flugið eitt og sér.
Nú vill svo til að margar ferðaskrifstofur bjóða á köflum flug eingöngu þegar flogið er á sólríkar slóðir við Miðjarðarhafið. Afar jákvætt að bjóða aukið úrval en gallinn gjarnan verið sá að flugferðirnar hafa verið verðlagðar út í hróa hött. Skemmst er að minnast tilboðs Úrval Útsýn á flugi eingöngu til Alicante fyrir litlar 120 þúsund krónur á mann. Það á sama tíma og hægt var að negla sama flug á eigin vegum niður í 40 þúsund krónur per mann.
Hjá Vita hafa menn meira vit en það og bjóða flugið til Faro og heim aftur niður í 50 þúsund krónur eða 25 þúsund kall hvora leið fyrir sig. Vissulega ekki með því lægsta sem gerist en á það ber að líta að hér er farangur innifalinn og flugtími eðlilegur; flogið út að morgni og heim síðdegis. Með það í huga er tilboð Vita barasta mjög fínt.
Til hvers svo að taka bara flugið í stað þess að skella sér á einn af þeim pökkum sem Vita býður? Það er gáfulegt ef fólki langar til að skoða sig um í héraðinu og jafnvel gista á fleiri stöðum en einum. Að okkar mati eru svæðin til austurs af Faro og vesturs af Albufeira 400 prósent yndislegri en Albufeira og nágrenni. Mun minni túrismi og miklu meira að sjá.
Svo er Algarve almennt eitt allra ódýrasta svæði heims bæði hvað varðar mat og þjónustu og gistingu líka. Lausleg leit á hótelvef okkar hér að neðan leiddi í ljós að hægt er að negla vikulanga gistingu í aprílmánuði á ágætum þriggja stjörnu hótelum allt niður í 25 þúsund krónur í heild. Það merkir að heildarkostnaður við ferðina fyrir hjón eða par endar í heilum 125 þúsund krónum alls. Fátt slæmt við það 🙂







