Hinn aldni blaðamaður Eiríkur Jónsson fárast yfir því í nýlegri bloggfærslu að ríkisfyrirtækið Ísavía, sem rekur flugvelli landsins, skuli dirfast að hagræða, undir rós, tölum varðandi kostnað við bílastæði við Leifsstöð. Vitibornu fólki kemur það ekkert á óvart.

Brosmildur er forstjóri Ísavía enda með feit laun og djobb til æviloka. Skjáskot

Eiríkur heldur úti ágætum vef þar sem fjallað er um allt og ekkert en þó aðallega ekkert. Inn á milli hittist þó skrattanum satt á munn og Eiríki líka.

Eins og þessi bloggfærsla hér ber með sér. Þar sýnir Eiríkur fram á að Ísavía lýgur til um kostnað við bílastæði við Leifsstöð og til að bæta 50 gráum skuggum ofan á svart þá breytti ríkisfyrirtækið tölum sínum þegar upp komst í stað þess að biðjast afsökunar.

Smekklegt mjög. Forstjóri Ísavía hlýtur að vera stoltur af sínu fólki. Hann sjálfur jú orðið uppvís að spillingu með því að þekkjast boð Icelandair um flug og flotterí hingað og þangað og gat meira að segja tekið betri helminginn með og þurfi ekkert að gefa upp til skatts.

Það alltaf gaman þegar fólk með milljónir króna í mánaðarlaun frá ríkinu reynir að sleppa við að borga klink í ríkissjóð. Sérstaklega þegar sama lið er on-record að tala um hve indæl tilfinning það sé að gera góðverk.

Morgunljóst að meðan Björn Óli Hauksson er forstjóri Ísavía verður alltaf og ávallt grunur um misferli í starfi þessarar ríkisstofnunar. Vald spillir og vald spillir meira því lengur sem stakur plebbi er við stjórnvölinn.

Þess vegna á ekki að koma á óvart að Ísavía vill frekar fela mistök sín en gangast við þeim. Það stemmir við sjéffann sjálfan.