Þeir eru orðnir rúmlega tuttugu ára gamlir báðir tveir en betra seint en aldrei. Viddi kúreki og Bósi ljósár, aðalsöguhetjur hinna vinsælu Toy Story kvikmynda, hafa loks fengið sinn eigin skemmtigarð.

Loks fá aðdáendur Toy Story sinn skammt í glænýjum skemmtigarði Disney. Mynd Disney

Nýr skemmtigarður Disney-samsteypunnar hefur opnað við hlið þeirra sem fyrir eru á risastóru skemmtigarðasvæði fyrirtækisins við Lake Buena Vista í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Þar fá loks að leika lausum hala einhverjar allar vinsælustu fígúrur kvikmyndanna síðustu árin: Viddi kúreki, Bósi ljósár, kartöflukarlinn og allir aðrir velþekktir aðilar úr Leikfangasögu, Toy Story, kvikmyndunum.

Gaman að þessu þó líklega sé ryk farið að falla á fígúrurnar atarna enda líður varla mánuður þessi dægrin án þess að nýjar og skemmtilegar teiknimyndir líti dagsins ljós.

Í öllu falli ástæða til að taka dag frá ef för er heitið vestur til Flórída eftirleiðis. Það þarf jú drjúgan tíma til að skrölta um troðna skemmtigarða Disney og ekki síst þegar hinn vinalegi Viddi og monthaninn Bósi sjá um skemmtunina.