Flugfélagið Primera Air fer mikinn þessi dægrin. Ekki aðeins erlendis þar sem Primera er farið að kljást við öflugustu flugfélög Evrópu í Bandaríkjaflugi heldur og hér heima. Flugfélagið hefur fyrsta sinni, okkur vitandi, auglýst sumarútsölu á ferðum sínum. Nema við finnum alls ekkert við leit.

Sumarútsala á flugi hljómar ekki illa. En hvar á að leita? Skjáskot
Rákumst á þessa fínu auglýsingu Primera Air á fésbókarvefnum okkar fyrr í dag. Það vel enda við hér spennt fyrir ferðalögum allan ársins hring og ekki skemmir ef við fáum pakkann á afsláttarprís.
Í auglýsingunni stendur „Nýttu þér sumarútsöluna og bókaðu fríið þitt. Frábært verð á öllu flugi frá Íslandi.“
Ekki amalegt það.
Það versnaði þó í því þegar við ætluðum að skoða „sumarútsöluna“ sem um ræðir. Þá fengum við upp sömu hefðbundnu forsíðu Primera Air og venjulega og hvergi þar staf að finna um nokkra sumarútsölu eins og sjá má.

Síðan sem þú færð þegar þú eltir „sumarútsöluauglýsingu“ Primera Air. Hvergi neitt að sjá óvenjulegt.Skjáskot
Á síðunni atarna má finna nokkur ágæt „sértilboð“ á flugi frá Reykjavík í vetur og vor!!! Algjör nýjung að Primera fljúgi frá Reykjavík til nokkurs staðar. Látum þá lýgi liggja milli hluta að sinni. Aðeins neðar má finna „sjóðandi heit vortilboð á ómótstæðilegum verðum.“
Allt hjá Primera Air virðist vera ómótstæðilegt. En ekki orð eða leiðbeiningar um hvar eða hvernig fólk á að finna þessi „ómótstæðilegu“ sumartilboð. Eigum við bara að eyða heilu kvöldi að fletta dagsetningum til sumaráfangastaða og vona það besta?
Við reyndum það líka um tíma en árangurslaust. Fullt af ferðum hingað og þangað en allar ferðir dýrar, eða í öllu falli svipað dýrar og venjulega, og ekkert sérstaklega merkt sumarútsölu…
Sem kannski er ástæða þess að aðaleigandi Primera Air, Andri Már Ingólfsson, var valinn maður ársins á sínum tíma hjá Frjálsri verslun. Frábær hugmynd að auglýsa sumarútsölu sem enginn finnur. Tvöfalda fálkaorðu á manninn strax.







