Oft kemur það fólki á óvart að vita að í landinu eru starfræktar vel yfir 30 ferðaskrifstofur sem sérhæfa sig að mestu í pakkaferðum fyrir okkur Íslendinga. Heillaráð að skoða heimasíður þeirra allra ef hugmyndin er að prófa eitthvað nýtt án þess að hafa of mikið fyrir. 

Sjórinn við strendur Spánar ekki alveg svona tær og ljúfur.

Við hér skoðum úrvalið reglulega og þó vissulega séu margar þær ferðir sem í boði eru héðan mikið mun dýrari en sambærilegar ferðir frá nágrannalöndum þá er fólk þó á móti að sleppa við allt tilstand sem er töluvert þegar græja á ferð annars staðar frá eða á eigin vegum. Plús auðvitað að íslenskar ferðaskrifstofur heyra undir íslensk lög og því auðveldara að sækja rétt sinn ef eitthvað fer úrskeiðis.

Við síðustu yfirreið rákumst við á sex ferðir sem okkur hér þykja móðins og ykkur vonandi líka. Það er að segja ef draumurinn er eitthvað annað en Benídorm eða Kanarí.

Skíðastaður þar sem þú endar alltaf hjá hótelinu er góð hugmynd 🙂

A)  Fyrir mörgum árum síðan voru Mexíkóferðir vinsælar hérlendis og þó nokkrir aðilar að bjóða sólarferðir þangað. Ferðaskrifstofan Farvel heldur uppi merkinu í dag og býður alveg ágæta ellefu daga ferð til hins vinsæla Yucutan-skagans í júnímánuði. Gnótt að upplifa ef fólk vill ekki steikjast á ströndinni og verðið ekki mikið hærra en sólarferð til Spánar.

B)  Ferðaskrifstofan Kúbuferðir er tiltölulega nýtt fyrirtæki en vel er látið af ferðum þeirra sem eru nánast eingöngu til Kúbu. Þeir núna að bjóða upp á tólf daga ferð í nóvember og flakkað vel um eyjuna alla í smærri hópum.

Sannarlega eitt af undrum veraldar. Gljúfraborgin Petra er ólýsanlega fallega.

C)  Ferðaskrifstofan Íslandsferðir eru með í sölu safaríkan tólf daga túr um Balkanskagann í vor. Töluverð keyrsla og lítið um slökun en á móti kemur vitnar fólk marga spennandi staði í löndum á borð við Albaníu, Króatíu, Makedóníu, Serbíu og Bosníu.

D)  Hafi fólk ekki þegar bókað ferð til Rússlands nú þegar Ísland keppir þar á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er ekki slæm hugmynd að kíkja á vef ferðaskrifstofunnar Bjarmalands. Þar meðal annars boðið upp á sérdeilis fína skemmtisiglingu á milli Pétursborgar og Moskvu um miðjan ágúst. Fullt af stoppum á leiðinni og dekrað við farþega allan tímann um borð.

E)  Gegnum tíðina hefur það verið mikil hending ef einhver hefur boðið upp á skíðaferðir annað en til Kolóradó í Bandaríkjunum, Ítalíu eða Austurríki. Ferðaskrifstofan SurprizeTravel býður hins vegar sjö daga skíðaferð til Andorra á næstunni. Alveg fyrirtaks brekkur þar og aðstaða 100%. Ekki leiðinlegt heldur að geta lengt í ferðinni og eytt dögum í Barcelona ef sá gállinn er á fólki.

F)  Sífellt fleiri Íslendingar kjósa að hjóla um hvipp og hvapp og þá óvitlaust að taka þann áhuga erlendis. Ferðaskrifstofan UltimaThule er að bjóða nokkra spennandi hjólatúra og þar á meðal einn þar sem skottast verður um dásemdir Jórdaníu og tíma eytt við Dauðahafið að auki. Funheitt já en meðal áfangastaða hin stórkostlega og einstaka gljúfraborg Petra. Hún ein og sér gerir þessa ferð þess virði.

Um að gera að víkka út sjóndeilarhringinn sem oftast og vart til betri leið til þess en ferðast á ókunnar slóðir.