Lesendum okkar er vel kunnugt um harðar aðgerðir flestra vinsælla strandstaða Mallorca gegn ofdrykkju og fillerísrugli á götum úti. Nú ætlar höfuðborgin, Palma, að gera enn betur.

Á Mallorca reyna menn að bregðast við ólátum og veseni breskra ferðalanga en með heldur drakónískum hætti. Mynd DiarodeMallorca
Okkur datt orðið fasismi í hug þegar við fregnuðum til hvaða aðgerða borgaryfirvöld á Palma de Mallorca vilja grípa til strax næsta vor í því skyni að draga úr ólátum og vandræðagangi vegna erlendra ferðamanna.
Palma ætlar að BANNA börum og veitingastöðum að bjóða upp á svokallaða hamingjustund, happy hour, þar sem gestir geta keypt drykki á hálfvirði á tilteknum tímum. Palma ætlar að leggja bann við að fleiri en tveir einstaklingar geti drukkið áfengi saman utandyra eftir klukkan 22 á kvöldin. Stærri hópar fólks fái feita sekt. Í tilteknum hlutum borgarinnar verður alls ÓHEIMILT að drekka áfengi utandyra eftir sama tíma. Blátt BANN verður við að gestir geti klárað áfenga drykki inni á börum og klúbbum eftir lokun.
Það er ekkert öðruvísi. Þó hugmyndirnar séu ekki lengra komnar en inn á borð borgarstjórnar segir dagblaðið Diario de Mallorca frá því að velflestir borgarfulltrúar séu hlynntir tillögunum og telja yfirgnæfandi líkur á að reglurnar verði að veruleika og það strax í vor.
Gott og blessað að reyna að bregðast við eilífum og þreytandi drykkjulátum Breta, sem virðast allir missa sig í ofdrykkju og steypu um leið og lent er á Mallorca. En þetta er alvarlega of mikið af því góða ef svo má að orði komast. Tvenn íslensk hjón eða fjórar íslenskar vinkonur á barnum fá yfir sig lögreglu og sektir fyrir að vilja njóta utanlandsferðar saman.
Einhverjum kann að finnast þetta þokkalega eðlilegt. Hver er svo sem að hanga á börum yfir kokteilum langt fram eftir kvöldi. En þá gleymist að Spánverjum sjálfum, íbúar Mallorca meðtaldir, dettur fæstum í hug að svo mikið sem snertra kvöldmat fyrr en klukkan 21 og margir fara mun seinna en það. Áfengi er undantekningarlítið um hönd við þau tilefni. Slíkt bann mun því hafa feitar afleiðingar fyrir heimamenn sjálfa. Nema auðvitað þessu sé einungis beint að útlendingum. Þá er um mannréttindabrot að ræða.
Þetta á töluvert mikið skylt við fasisma ef einhver spyr okkur hér.







