Einn galli og þrír plúsar við Danmörku í sumar. Gallinn hversu dýrt landið er orðið fyrir íslenska krónueigendur. Plúsarnar að það fjölgar enn skemmtiatriðunum í Tívolíinu, Lególandi og Djurs Sommerland.

Það þarf mikinn viljastyrk til að láta sér leiðast í Tívolíinu í Köben.
Enn eitt vorið að ganga í garð. Á Íslandi bíða menn lóunnar til að tímasetja komu vorsins en í kóngsins Köben eru margir sem setja samasemmerki við vorið og opnun hins einstaka Tívolís borgarinnar. Ólíkt lóunni sem enginn veit hvenær lætur sjá sig vita menn þó upp á hár hvenær Tívolí opnar.
Það gerist með pompi og prakt þann 26. mars næstkomandi og enn eitt árið er skemmtigarðurinn að bjóða upp á skemmtilega nýjung. Allavega skemmtilega fyrir þann hóp fólks sem þolir að láta sveifla sér linnulítið til og frá án þess að finna fyrir svima og flökurleika.
Fatamorgana heitir tryllitækið nýja sem Tívolí hefur sett upp en það tæki er tæknilega einn 45 metra hár turn sem sést víða að í miðborginni. Við förum ekkert nánar út í hvað er í boði í þessum turni en látum nægja að nefna að þar eiga allir að finna eitthvað við hæfi.
Lególand líka með ferska nýjung
Því fer þó fjarri að Tívolíið sé eini skemmtigarðurinn sem bryddar upp á nýjum spennandi hlutum. Ekki minna frægt Lególand lætur ekki sitt eftir liggja enda fagnar skemmtigarðurinn 50 ára afmæli sínu á árinu.
Ninjago World heitir ný undraveröld sem komið hefur verið upp í Lególandinu fyrir vertíðina og þar ekkert til sparað enda dýrasta viðbót við skemmtigarðinn sem Legó hefur nokkurn tíma gert. Ekki ætlum við heldur hér að fara út í smáatriðin en látum nægja að fullyrða að smáfólkið þekkir Ninjago ábyggilega mætavel þó mamma og pabbi komi alveg af fjöllum.
Lególand opnar þann 24. mars.
Fleiri heilla smáfólkið
Hinn þekkti skemmtigarður Djurs Sommerland á Jótlandi skammt frá Árósum lætur ekki sitt eftir liggja heldur. Þar mun sigla þetta sumarið raunverulegt sjóræningjaskip en í nógu smækkaðri mynd til að fimm til níu ára krakkar geti stjórnað að vild.
Það í ofanálag við geysivinsælan rússíbana sem settur var upp í fyrra og vakti vægast sagt lukku. Það er reyndar til marks um hversu góður skemmtigarður Djurs Sommerland er að nýjum leiktækjum hefur verið bætt við hvert einasta ár frá opnun staðarins árið 1981.
Í viðbót við ofangreinda þrjá skemmtigarða eru minnst tveir aðrir, Bakken í Kaupmannahöfn og Tivoli Friheden í Árósum að breyta og bæta hjá sér fyrir sumar. Þeir báðir bjóða sérstaklega upp á tæki fyrir þau allra yngstu.







