Sterkar líkur liggja til að heimsókn til hinnar annars fallegu Höfðaborgar í Suður-Afríku sé ekki þess virði á næstunni. Borgin glímir við ægilegan vatnsskort og áætlanir gera ráð fyrir að vatnsskortur verði að algjöru vatnsleysi strax í aprílmánuði.

Hér ekki gott að vera næstu vikurnar og jafnvel mánuði. Mynd Damien du Toit
Okkur vitandi eru engar skipulagðar ferðir til Höfðaborgar, Cape Town, næstu vikurnar hjá innlendum ferðaskrifstofum en töluverður fjöldi Íslendinga sækir borgina heim reglulega á eigin vegum.
Það alla jafna góð hugmynd. Borgarlandið afar fallegt, borgin sjálf nútímaleg, ódýr og tiltölulega hrein og í næsta nágrenni æði margt forvitnilegt að sjá og upplifa.
En það er heldur súrt að dvelja á þessum sólríka og heita stað og geta ekki hent sér í sundlaug hótelsins svo eitt dæmi sé tekið. Bann við að fylla á sundlaugar borgarinnar hefur þegar tekið gildi og miklar takmarkanir á vökvun á gróðri. Hætt við að grænt grasið á golfvöllum hér svo ekki sé minnst á miklar vínekrur um allar trissur þoli ekki margar vikur án vatns.
Það allt samt hjóm eitt þegar hér verður alfarið vatnslaust sem borgaryfirvöld áætla að verði aðra vikuna í apríl. Þá verður vatn á brúsum skammtað til heimila en ekki nægilega mikið til að fólk komist í sturtu, bað eða geti sturtað niður úr klósettum. Ekki þarf háa greindarvísitölu til að gera sér grein fyrir að hér verður megn ólykt um allar trissur fljótlega í kjölfarið og uppþot og mótmæli vægast sagt líkleg.
Eina lausnin á þessu vandamáli Höfðaborgar er að það rigni heil ósköp fram til apríl. Það telst vera ólíklegt enda varla komið dropi úr lofti á þessum slóðum um þriggja ára skeið.
Settu því Höfðaborgartúrinn á ís ef þú átt bókað næstu misserin. Annars verður ferðin allt annars eðlis en þú áttir von á.







