Nautnaseggir hvarvetna slá ekki hendinni mót góðum brie né heldur glasi af Dom Pérignon. En sumir þeirra fá kannski bakþanka þegar nálin á vigtinni færist hægt og bítandi til hægri.
Bakþanka er ekki mjög spennandi að fá á ferðalögum en margar kannanir sýna að flest bætum við aðeins á okkur í ferðum erlendis. Að mörgu leyti eðlilegt enda við flest að leyfa okkur meira í mat og drykk en við gerum dags daglega heimavið. Ofan á það bætist ef til vill hreyfingarleysi undir sterkri sólinni og fyrr en varir sýnir vigtin hærri tölu en við kærum okkur um að sjá.
Þetta vandamál er að mestu úr sögunni á hreint ágætum vikulöngum túrum sem eru í boði frá París hvert sumar með fyrirtæki sem kallar sig BoatBikeTours. Þeir bjóða hefðbundnar fljótasiglingar en með þeim formerkjum að gestir hjóla hluta leiðarinnar. Þannig nokkrar flugur slegnar í einu höggi: fátt betra en ljúf fljótasigling en heldur ekki amalegt að hjóla um litla fallega bæi og þorp og stoppa hvar og hvenær sem ástæða þykir til. Bætum við þetta stöku túra með leiðsögn á athyglisverða staði og við erum komin með ákaflega spennandi ferð um mjög spennandi svæði og líklega fækkar kílóunum líka.
Svæðið sem um ræðir? Nafnið segir allt sem segja þarf: Champagne.
Champagne héraðið er rúma hundrað kílómetra til austurs af París og þar er hinn fallegi bær Épernay mekka kampavíns. Velflest frægustu kampavínshúsin yrkja jörðina hér og víðast hvar hægt að komast í smökkun eða kynningar.
En kampavín eitt og sér er full einhæft. Ráð að grípa einn ost með eða svo. Þá eru menn heppnir. Hér eru nefninlega líka framleiddir einhverjir bestu brie-ostar í veröldinni og eins og með freyðivínið er hægur leikur að heimsækja bændur sem ostinn þann framleiða.
Túrinn endar í borginni Reims og þar fólki í sjálfsvald sett hvort ferðinni er haldið áfram eða haldið aftur til Parísar. Sé haldið aðeins lengra til austurs frá Reims finnst til dæmis hið fræga svæði Verdun sem komið hefur við sögu í velflestum styrjöldum Evrópu gegnum tíðina.
Þetta hljómar ekki illa eða hvað? Verðið fer heldur ekki með neinn en túrinn atarna kostar 154 þúsund á mann miðað við tvo saman í káetu.








