Pálmi svindlari Haraldsson er kominn í samstarf við Morgunblaðið ef marka má umfjöllun hins síðarnefnda á fljótasiglingum í boði eins fyrirtækis Pálma: ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn.

Lágt leggst Moggi að fara í samstarf við alræmdan svindlara. Skjáskot
Þar kynnir blaðið „nýjar og spennandi“ fljótasiglingar með bandaríska fyrirtækinu AMA Waterways um helstu fljót Evrópu sem Úrval Útsýn selur ferðir fyrir hönd Bandaríkjamannanna.
Hvers vegna Úrval Útsýn leitar til bandarísks fyrirtækis til að bjóða siglingar um Evrópu má makalaust heita. Sérstaklega nú þegar dollarinn er sterkur en evran tiltölulega veik. Látum þann kjánaskap þó liggja milli hluta en hér ber þó að hafa í huga að ábyrgð bandarískra fyrirtækja er mun minni en ábyrgð evrópskra fyrirtækja ef eitthvað bjátar á í ferðinni.
Við hér kíktum lítillega á verðlagningu AMA Waterways svona til samanburðar ef áhugasamir bóka beint hjá fyrirtækinu á netinu. Þó vissulega sé Úrval Útsýn greinilega að taka til sín þetta 50 til 60 þúsund kall aukalega á kjaft er verðlagning ÚÚ ekki alveg út úr kú. Það er eðlilegt að kostnaður sé hærri héðan enda flugið, fararstjórn og annað innifalið hjá ÚÚ en ekkert slíkt í boði á vef AMA Waterways.
Það sem vakti þó mesta athygli okkar við nánari skoðun á einni þeirri ferð sem ÚÚ býður gegnum AMA Waterways er smáa letrið. Hér um að ræða ferðina „Melódíur og listaverk úr ranni Dónár“ eins og fróðir kalla fyrirbærið. Þar um að ræða ljúfa sjö nátta siglingu frá Búdapest í Ungverjalandi áleiðis til þýska bæjarins Vilshofen sem er ekki langt frá borginni Munchen. Heildarkostnaður miðað við tvo saman alls 675.600 krónur í ódýrustu káetu.
Smáa letrið er þetta: flug til Munchen og heim frá Búdapest, ferðir milli flugvalla og skips, hótelgisting í Munchen og Búdapest, 7 daga sigling í tvíbýli, allur matur, drykkur og fjöldi skoðunarferða. Fargjöld, hótelverð og gengi miðast við 9. nóv 2017.
Munið að hér um að ræða siglingu frá Búdapest til Vilshofen skammt frá Munchen.
En Úrval Útsýn ætlar að fljúga okkur til Munchen til að byrja með og ætlar með okkur heim frá Búdapest!!!!
Með öðrum orðum þá er hugmynd Úrval Útsýn að „lúxusferð“ sú að fljúga fólki til Munchen, henda þeim upp í rútu í sjö klukkustundir til Búdapest áður en sigling hefst. Svo þegar stigið er frá borði í Vilshofen tekur við fimm til sex klukkustunda rúntur til Búdapest þaðan sem flogið er heim. Ellefu til tólf klukkustundir í rútu milli staða gjörsamlega á skjön við siglingaráætlunina.
Þetta er sérstaklega undarlegt þar sem beint flug til Búdapest er í boði frá Íslandi með Wizz Air þessar dagsetningar. En nei. Látum lýðinn skröltast í rútu klukkustundum saman og kölluð það lúxus.
Nei, takk.







