Við hér hjá Fararheill höfum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fengið kúk og kanil í pósti fyrir að dirfast að gagnrýna hið „merka“ fyrirtæki Icelandair.

Stjórnarformaður og forstjóri Icelandair. Er þeim ekki drullusama um Íslendinga? Eða hvað heldur þú lesandi góður? Skjáskot
Það er eins og það er. Á Íslandi, líkt og í Bandaríkjunum, er til fólk sem vart kann af stafa og margföldunartaflan að vefjast fyrir þeim langt fram eftir aldri. Svo ekki sé talað um að sjá gegnum steingeld kosningaloforð Panamaprinsa…
Við fáum oft að heyra hversu miklir þjóðernishatarar við séum að dirfast að benda á skít og kúk hjá Icelandair. Fyrirtæki sem er EINGÖNGU á lífi vegna lífeyrissjóða okkar landsmanna og við höfum ALLAN rétt að gagnrýna. Sérstaklega þegar forstjóri fyrirtækisins níðist á heilum hóp landsmanna og glottir við tönn þegar hlutabréf í flugfélaginu falla hraðar en mannorð Kevin Spacey.
En fyrir þau ykkar sem missið þvag þegar Icelandair ber á góma er ráð að skoða hvað þetta flugfélag okkar er raunverulega að bjóða okkur umfram aðra sem ekki haft lagt EINA KRÓNU í reksturinn.
Lægsta verð á flugi fyrir einn Dana til Keflavíkur og heim 5. – 12. janúar:

Gott og blessað. Daninn kemst ódýrt á klakann eða fram og aftur fyrir 22 þúsund kallinn tæpar lægst. En komumst við ódýrt til Köben á sama tíma? Skoðum málið:

Jamm og jæja!!! Danskurinn kemst hingað á rétt tæplega 70 PRÓSENT LÆGRA VERÐI en Íslendingi býðst að fljúga öfuga leið með sömu vélum.
Auðvitað er miklu dýrara að fljúga héðan til Köben en frá Köben og hingað. Segir sig sjálft. Miklu sterkari mótvindar eins og gefur að skilja og danska krónan miklu sterkari en sú íslenska…
Einmitt Romney.
Neibbs. Hér er flugfélagið OKKAR að raða kaktusum upp í afturendann á landanum meðan danskurinn, finnskurinn og sænskurinn fljúga á príma prís á klakann. Því það finnst ósköp svipað verð á þessum tíma frá Finnlandi og Svíþjóð svo ekki sé minnst á Noreg.
PS: ágætt að muna að stjórnarformaður Icelandair er einnig forstjóri Toyota á Íslandi. Kannski ráð að hætta við að kaupa Toyota og valsa beint í Kia eða eitthvað annað fyrst forstjóranum finnst í lagi að níðast á Íslendingum umfram aðra Norðurlandabúa. Eða hefur einhver séð tilboð frá SAS þar sem Íslendingum býðst 70 prósent lægra verð á flugi en þeim sem eiga flugfélagið?
Skítapakk út í eitt.







