Viti menn! Einhver háttsettur hjá Icelandair hefur tekið ábendingar Fararheill rækilega til sín. Nú hefur flugfélagið opnað á ný fyrir gestakomment á fésbókarsíðu sinni. Það eins og við manninn mælt: kvartanirnar streyma inn hraðar en Benny Hinn læknar sjúka.

Þjónusta eitthvað ofan á brauð enn þann dag í dag hjá Icelandair.

Um langa hríð nú hefur Icelandair, eins og reyndar Wow Air líka, bæði alfarið lokað á öll gestakomment á fésbókarsíðu sinni og síðar meir ritskoðað allar færslur sem þar birtast. Um margra mánaða skeið póstaði enginn þar nema þeir sem áttu ekki til orð yfir fyrsta flokks þjónustu flugfélagsins. Sem kom flatt upp á þá sem fylgst höfðu með þessum kommentum áður vegna þess að níu af hverjum tíu færslum voru þá neikvæðar í garð Icelandair.

Skyndilega nú er kommentakerfið opið á ný og annaðhvort er um stefnubreytingu að ræða hjá Icelandair eða ritskoðarar samfélagsmiðla eru í sumarfríi. Í öllu falli birtast nú neikvæðar umsagnir um flugfélagið á fimm mínútna fresti eins og reyndin var áður en lokað var fyrir á sínum tíma.

Og svo framvegis og svo framvegis.

Það má þó ekki grilla flugfélagið alveg á teini því það er jú jákvætt að opna á nýjan leik fyrir viðskiptavini sem mögulega fá ekki aðstoð hjá þjónustuveri Icelandair. Það er jú fátt verra en fá kúk og kanil frá viðskiptavini á fésbók sem allir geta lesið.

Að því sögðu stendur allt það sem við höfum sagt um flugfélagið gegnum tíðina. Þjónusta er döpur í besta falli og ekkert lagast ár eftir ár eftir ár eftir ár….

Kannski við hér sækjum um hjá flugfélaginu. Enginn þar virðist kunna skil á hugtakinu góð þjónusta.