Forvitnileg heilsíðuauglýsing í stóru dagblaði hérlendis fyrir helgi frá nýju fyrirbæri sem kallar sig Rúmeníuferðir og auglýsir ferðir til þess ágæta lands. En hvaða fólk er þarna að baki og er þeim treystandi?

Treystir fólk rúmenskri ferðaskrifstofu? Þá gæti Rúmeníuferðir verið málið.
Alltaf gaman þegar nýir aðilar taka upp hjá sér að bjóða landanum til ókunnra landa. Aðeins verra að upplýsingar um þessa rúmensku ferðaskrifstofu eru takmarkaðar með endemum.
Fátt er athugavert við úrval ferða á vef þessarar ferðaskrifstofu. Í boði að því er virðist ágætir túrar til fyrrum austantjaldsríkja og ekki er verðmiðinn á ferðunum almennt að skemma neitt heldur.
Við sendum skeyti á ferðaskrifstofuna án árangurs en næsta auðvelt að sjá að einhver Sigrún og Jón Valur svara skeytum áhugasamra. Þau segjast hafa búið í Rúmeníu um margra ára skeið og rekið þar bisness.
Fyrsta spurning hlýtur að vera: „Hvers vegna opna ferðaskrifstofu ef bissnessinn í Rúmeníu gekk svona vel?“
Önnur spurning gæti verið: „Hvers vegna stofna ferðaskrifstofufyrirtæki í Rúmeníu en ekki á Íslandi til að ferja íslenska ferðamenn? Skattarnir mun lægri í Rúmeníu vissulega en er það eina ástæðan? Hvað með tryggingar ferðafólks og til hvaða rúmenska aðila leitar fólk ef ekki er allt með felldu?“
Þriðja spurning gæti verið: „Hvers vegna er leiðsögn á ensku/rúmensku um dásemdir Rúmeníu ef íslenskir aðilar standa að ferðunum? Væri ekki eðlilegt að allar ferðir væru með íslenskum leiðsögumanni/konu?“
Spyr Fararheill sem ekki veit og ekki treystir 😉







