Íslandið er funheitt þrátt fyrir kvíðastunur ferðaþjónustuaðila sem vilja ekki greiða jafn háa skatta og öll önnur fyrirtæki í landinu. Nú hefur vænn biti bæst í samkeppnina til stærstu borga Kanada: Air Canada.

Aukin samkeppni til Kanada en ekki lægri fargjöld. Mynd AirCanada
Húrrahrópin í fyrirsögnina taka aðeins til aukinnar samkeppni per se en það er þó því miður svo samkvæmt úttektum okkar hér að Air Canada er almennt ekki að bjóða lægri verð en Icelandair og Wow Air sem einnig fljúga beint til Kanada reglulega. Öll flugfélögin þrjú bjóða nú flug til Montreal og Toronto.
Engu að síður veit enginn hvað verður í framtíðinni og ljúft væri að sjá Air Canada bjóða lægri fargjöld en flugfélagið gerir nú. Í öllu falli sakar ekki að gera verðsamanburð ef Kanadaferð er á döfinni.
Tvennt hefur kanadíska flugfélagið þó framyfir hin íslensku. Annars vegar að leiðakerfi Air Canada nær yfir Kanada alla og því auðsótt mál að tékka farangur alla leið sé för heitið á aðrar slóðir í landinu en Montreal eða Toronto. Hins vegar að flugfélagið er hið besta í Norður Ameríku samkvæmt listum Skytrax 2018. Það ætti að merkja töluvert hærra þjónustustig en Wow Air eða Icelandair bjóða upp á.







