Töfrarnir frá Toyota virðast ekki skila sér yfir til Icelandair ef marka má áframhaldandi niðurgang flugfélagsins á hlutabréfamörkuðum. Eitt bréf í Icelandair fékkst þennan daginn á 13 krónur og 19 aura og hefur aðeins einu sinni verið lægra síðan árið 2013.

Áfram lágflug hjá Icelandair Group.
Það allmerkilegt hve lítinn gaum innlendir fjölmiðlar gefa þessum niðurgangi eins allra stærsta fyrirtækis á Íslandi. Ekki síst þegar haft er í huga að ekki er langt síðan uppstokkun varð í stjórn fyrirtækisins vegna fyrri niðurgangs.
Flestir fjölmiðlar láta sér nægja að birta, óklippt og hugsunarlaust, fréttatilkynningar frá flugfélaginu þar sem fram kemur að allt sé meira og minna með felldu. Fleiri farþegar, betri sætanýting, skemmtilegri flugstjórar er aðalmálið. Á sama tíma eru íslenskir lífeyrissjóðir, sem eiga stóran hlut í Icelandair Group að blæða peningum hraðar en hægt er að segja heibabbílúlla. Blæðing sem fyrr en síðar þýðir að einhver ellilífeyrisþegi fær enn minna en ella í vasann mánaðarlega.

Fallandi lukka er ekki besta lukkan 🙂
En hvers vegna vill enginn fjárfestir snerta bréf félagsins. Og hvers vegna hefur ný og breytt stjórn engu breytt í því tilliti? Nýi formaðurinn fékk djobbið vegna „góðs“ árangurs sem forstjóri Toyota en Icelandair virðist of stór biti fyrir þann snilla. Nema keppikefli Icelandair sé, eitt allra fyrirtækja á markaði, að LÁGMARKA hagnað hluthafa.
Svo er jú ekki eins og flugfélagið hafi ekki reynt ýmislegt síðustu misserin. Uppstokkun í stjórn, þjónusta minnkað til muna meðan fargjöld hafa staðið í stað, Flugfélag Íslands gaf skít í Íslendinga og heitir nú Air Iceland Connect og heimildir Fararheill herma að aldrei áður hafi gjaldkeri flugfélagsins staðið eins mikið á bremsunni varðandi útgjöld hvers konar. Hver servíetta brúkuð aftur ef hún er ekki of skítug.
Ritstjórn Fararheill hefur áður viðrað þá skoðun að sparka þurfi forstjóranum út í hafsauga. Það er jú svo að nýir vendir sópa best og karlinn fær ábyggilega feitt starf hjá vinum sínum í HB Granda í staðinn. Ekki að hann þurfi þess með með sínar tugmilljónir króna í launatekjur árlega.
Í öllu falli ættu lífeyrissjóðir landsmanna að selja öll bréf sín í Icelandair Group hið fyrsta ef ekki verður gerð alvarleg bragarbót á stjórn flugfélagsins. Ekkert bendir til annars en lágflug verði áfram meginþemað hjá Icelandair með tilheyrandi tapi fyrir hluthafa.







