Það er ekkert öðruvísi. Flugleitarvefurinn Dohop segist geta útvegað okkur gistingu á heimsvísu á tilteknum hótelum með 50 prósenta afslætti!

Hvern munar ekki um HELMINGS AFSLÁTT á gistingu erlendis? Með slíkt tilboð upp á vasann er næsta auðvelt að bjóða fjölskyldu og nærsveitarmönnum með í mánuð til Tene og eiga samt peninga eftir til að eyða í vitleysu…

Samt kannski örfá atriði sem óvitlaust væri að segja hugsanlegum viðskiptavini um slíkt megatilboð – en Dohop gerir ekki.

  • Í fyrsta lagi ertu ekkert að bóka hótel hjá Dohop eins og gefið er í skyn. Þú ert að bóka hjá risanum Booking.com gegnum vef Dohop. Sami díll og hjá Icelandair, Wow Air og velflestum öðrum stærri aðilunum á markaðnum sem bjóða nákvæmlega sama verð á allri gistingu alls staðar.
  • Í öðru lagi kemur hvergi fram á vef Dohop HVAÐA hótel fást með 50% afslætti. Það er tæknilega ólöglegt. Viðskiptavinur á, samkvæmt íslenskum og evrópskum neytendalögum, að geta gengið að sértilboðum vísum án þess að þurfa að gera eitt né neitt sérstakt. Ekki gengi að Bónus auglýsti lundabringur á 50% afslætti en hvergi í búðunum væri lundabringur að finna. Þá væri Neytendastofa (vonandi) fljót að henda sekt á fyrirtækið.
  • Í ljós kemur á vef Booking.com að þessi frægu 50% afslættir finnast aðeins og eingöngu ef þú skráir þig á vef Booking.com. Þá færðu að vita fullt af „flottum“ leyndarmálum eins og til dæmis þessi hræbillegu hótel. Þú og sextán milljónir annarra áskrifenda.
  • Í ljós kemur líka við skoðun á smáa letrinu að þessir feitu og safaríku afsláttarkjör gilda einungis í sjö löndum heims. Það er vægast sagt léleg latína hjá risafyrirtæki sem auglýsir gistingu í 225 löndum heims. Einnig kemur fram að 50% afsláttarkjörin fást aðeins með litlum eða engum fyrirvara. Þ.e.a.s. ef þér dytti í hug að skutlast til Berlínar á morgun gætirðu fundið eitt hótel þar með 50% afsláttarpakkann. Sé hins vegar ferð til Tene fyrirhuguð í október eða leikhúsferð til London í desember færðu enga gistingu þar á helmings afslætti á vef Booking. Og hversu mörg okkar Íslendinga eru að skutlast erlendis með engum fyrirvara?

Gott og blessað. Booking.com býður oft ágæt tilboð víða um heim en það er ástæða fyrir að þeir einoka markaðinn hjá öllum stærstu ferðaþjónustuaðilum heims. Sú ástæða er hvorki súpergóð þjónusta né lægsta eða besta verð. Ástæðan er óvenjuhá þóknun sem Booking greiðir þeim er bjóða þjónustu þeirra á vefmiðlum. Allt að 22 prósent af hverri þóknun fyrir bókun endar hjá samstarfsaðilum Booking. Miðað við að aðrir smærri aðilar geta best boðið þetta 8 – 15 prósenta þóknun er ljóst hvar græðgisfyrirtækin leggja sínu höfði.

Í þessu samhengi hollt að hafa í huga að almennt er reglan í viðskiptaheiminum sú að fyrirtæki ýta öllum aukakostnaði út í verðlag við fyrsta tækifæri. Enginn skyldi halda að vegna þess að Booking býður sínum samstarfsaðilum drýgri þóknun en aðrir að Booking sé að gefa eitthvað sísona. Booking auðvitað tekur á móti feitari þóknun af þeim gististöðum sem finnast á þeim vef. Sem aftur veldur því að gististaðir hækka verð til að dekka feitari þóknun Booking.

Þess vegna er bandaríski bókunarrisinn oft á tíðum að heimta hærra verð fyrir gistingu en aðrir smærri aðilar þarna úti. Verð sem getur verið allt að 50% HÆRRA en sama gisting annars staðar.

Hættu svo að láta plata þig 🙂