Það varla fréttnæmt að flaggflugfélag Íslands, Icelandair, sé með allra óstundvísustu flugfélögum heims enda komist hátt á þeim lista síðustu árin. Undarlegast, eða kannski ekki, er að líkt og með margra mánaða biðlista í þjónustuveri flugfélagsins, virðist ekki nokkur maður í fyrirtækinu hafa áhuga á að taka á óstundvísinni.

Forsvarsmönnum Icelandair virðist alls fyrirmunað að koma rellum sínum í loftið á réttum tíma.
Auðvitað ætti að vera nóg að benda á hörmungaárangur Icelandair síðustu fjögur til fimm árin hjá alþjóðlegum miðlum sem taka saman stundvísi flugfélaga. En svona til marks um að þessu skítabatteríi er drullusama þótt viðskiptavinir þess komist nú ekki af stað á tilsettum tíma ætti skoðun á brottförum véla Icelandair frá Keflavík þennan daginn, 20. maí, að gera seinþroskuðum málið kristaltært.
Af alls 36 ferðum Icelandair frá Íslandi frá miðnætti til miðnættis þann 20. maí 2017 voru aðeins FIMM vélar sem tóku til lofts á réttum tímapunkti. Farþegar hinna 31 vélanna þurftu að gera sér að góðu að bíða lengur í hinni dásamlegu Leifsstöð og borga 600 kall aukalega í ábót á kaffið, þúsund kall fyrir sóma samloku eða þrjú þúsund kall fyrir aukaglas af vískíi á barnum. Sumir þurftu að bíða í nokkrar mínútur og sumir í vel rúma klukkustund.
Ef við skoðum þetta í hávísindalegu samhengi 😉 þá merkir þetta að heil ÞRETTÁN prósent véla Icelandair fóru í loftið á tilsettum tíma. Hörmulegt er ekki einu sinni nógu sterkt orð yfir slík vinnubrögð. Segir sig enda sjálft að fáir færu með strætó sem aðeins kæmi á réttum tíma í þrettán prósenta tilfella.
Slík frammistaða ár eftir ár eftir ár plús sú staðreynd að flugfélagið hefur nú herskara fólks til að blokkera neikvæðar umsagnir fólks um fyrirtækið á semfélagsmiðlum, plús sú staðreynd að vikur og jafnvel mánuði þarf að bíða eftir aðstoð þjónustuvers fyrirtækisins, segir allt sem segja þarf um þetta ljóta fyrirtæki.
Við eigum miklu betra skilið en svona skít frá flugfélagi sem fengið hefur feita ríkisaðstoð um ár og raðir.







