Gagnrýnin hugsun virðist ekki aðeins á undanhaldi hjá landsmönnum. Hún er beinlínis ekki til staðar hjá tilteknum fréttamönnum Vísis/Fréttablaðsins.

Jamm og jæja. Manila á Filippseyjum er fjórði vinsælasti áfangastaður Íslendinga í Asíu!!! Skjáskot

Stórundarleg „frétt“ birtist á vef Fréttablaðs Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, lygara og megaplebba, í dag þess efnis að Manila á Filippseyjum sé FJÓRÐI vinsælasti áfangastaður Íslendinga í Asíu samkvæmt flugleitarvefnum Dohop.

Þar tekur „fréttamaðurinn“ Sunna Karen Sigþórsdóttir fréttatilkynningu frá Dohop og setur fram sem ferska frétt án þess að blikka auga og án þess að láta sér detta í hug að leita frekari upplýsinga.

Dohop, að stórum hluta í eigu framsóknarmannsins Frosta Sigurjónssonar, fullyrðir samkvæmt fréttinni að Manila á Filippseyjum sé fjórði vinsælasti áfangastaður Íslendinga í Asíu fyrstu mánuði þessa árs. Það byggt á leit á vef Dohop hér heima á Fróni.

???? Manila? Filippseyjar?

Stóra fréttin í þessu, ef Sunna Karen hefði verið vakandi, er hvers vegna annars hættuleg höfuðborg Filippseyja hefur allt í einu náð áður óþekktum hæðum í ferðalögum meðal Íslendinga. Hefur einhver boðið þangað beint flug nýlega? Fá Íslendingar sérstakan afslátt á Manila-ferðum fyrstu mánuði ársins? Heillar Íslendinga að forseti landsins og lögregla drepur þar allt kvikt sem ekki er fullkomið? Eitthvað annað sem við erum að missa af?

Varla það.

Samkvæmt Hagstofu Íslands eru 1650 Íslendingar frá Filippseyjum með íslenskan ríkisborgararétt. Þeir vitaskuld vilja vitja heimahaga með reglulegu millibili og fyrstu mánuðir ársins er alltaf góður tími til að ferðast ódýrt.

Ritstjórn Fararheill vill meina að Manila per se sé ekki allt í einu farin að rokka sem súpergóður áfangastaður Íslendinga. Öllu frekar að þúsund Íslendingar með ættir að rekja til Filippseyja hafi tekið skrefið að undanförnu.

Sem segir ýmislegt um traffíkina hjá Dohop ekki satt 😉