Mikið óskaplega er nú indælt að minnst eitt fyrirtæki þarna úti skuli ekki hækka verð milli ára þó „góðæri“ eigi að heita á Fróni. Auðvitað kemur ekkert á óvart að það fyrirtæki er ekki íslenskt 🙂

Borgar sig að fara með bílinn til Evrópu með Norrænu? Það er spurningin.

Fjórða árið í röð er óbreytt verð per farþega með millilandaferjunni Norrænu sem færeyska fyrirtækið Smyril Line á og rekur. Ferjan sú eina sem gefur erlendu fólki færi á að koma á bíl hingað til lands eða okkur að flakka um á eigin bíl í Evrópu.

Það kostar okkur sömu upphæð að ferðast með Norrænu nú og það gerði árið 2014, 2015 og 2016 og til mikillar eftirbreytni enda Íslendingar vanari því að verðlagning allra fyrirtækja fari vel upp á við þegar uppgangur er í þjóðfélaginu. Eða hvar eru allar þessar verðlækkanir í verslunum sem breytingar Bjarna Ben á skattafyrirkomulagi og tollum áttu að skila í hús neytenda? Og hvar eru allur afslátturinn af tröllvaxinni krónu? Það er jú ekki eins og helmingur allra vara í landinu komi ekki frá Bretlandi og pund þeirra Breta hefur fallið skarpt á sama tíma og litla íslenska krónan hefur hækkað dag frá degi um tveggja ára skeið. Vörur frá Bretlandi ættu að kosta okkur 50 prósent minna nú en 2015. Einhver orðið var við það?

Að því sögðu fer fjarri að ódýrt sé eða hagstætt að sigla með Norrænu til lands eða frá. Par á bíl sem langar til Evrópu yfir sumartímann pungar út tæpum 200 þúsund krónum fyrir þann pakka. Sama par gæti líka hoppað í næstu lággjaldaflugvél og átt eftir 170 þúsund kall til að eyða í bílaleigubíl til samanburðar og er töluvert fljótari á leiðinni líka.

Enn verra reyndar að Smyril Line er enn á nítjándu öldinni hvað tæknina varðar. Ekki er hægt að bóka beint með ferjunni á vefnum heldur verður að svara trilljón spurningum og senda á bókunardeild sem svo kíkir á málið þegar þau eru búin í smókpásu. Aldeilis 2017 þar á bæ.

Engu að síður verður að gefa Smyril Line plús í kladdann fyrir að veita þessa þjónustu og gefa okkur aukið val á ferðum erlendis.

Nýjasti bæklingur Norrænu hér ef fólk er forvitið.