Heimur versnandi fer sagði einhver í fornöld og ekki ólíklegt að um miðil hafi verið að ræða sem sá fyrir fábjána í Hvíta húsinu í Washington. Meiri fábjána en George W.

Helsta verslunarmiðstöð Abu Dhabi. Þar eins og annar staðar í grennd hækkar verð á vöru og þjónustu um fimm prósent um næstu áramót.

Sá hinn sami sá kannski líka fyrir sér upptöku söluskatts hjá vellauðugum olíuríkjum í Mið-Austurlöndum en hjá þeim hefur slíkt aldrei nokkurn tímann verið raunin.

Svartagullið er ekki lengur að fylla vasa stórvesíra og vini þeirra í löndum á borð við Katar, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Sádí-Arabíu, Kúveit og Óman svo nokkur séu nefnd.

Þá verður að kreista lýðinn með einhverjum hætti og í öllum þessum löndum verður, að óbreyttu, tekinn upp söluskattur á vörur og þjónustu í byrjun árs 2018.

Sem merkir að allt alls staðar í öllu löndunum hækkar um fimm prósent um næstu áramót þó reyndar stöku þjóðir hafi fengið bakþanka af samkomulagi þessa efnis. Þó vel sé hægt að gera ágæt kaup í verslunum í Abu Dhabi eða Muscat þá er munurinn ekki nógu mikill til að sérferð á þessar slóðir borgi sig. Allra síst ef ofan á bætast auknir skattar.

Verslun per se er kannski ekki meginástæða heimsókna vestrænna ferðalanga á þessar slóðir. En allir þurfa þeir gistingu og sú mun hækka um fimm prósent líka eins og annað ef allt fer að áætlun hjá þeim skikkjuklæddu herrum í þessum löndum. Það gæti sett strik í reikning því þótt margt og mikið sé ódýrt á þessum slóðum er gisting yfirleitt ekki eitt af því.