Það var og. Ekki fyrr er Eiríkur Jónsson hættur að ritstýra Séð og heyrt en hann fer að þiggja sporslur frá svindlaranum Pálma Haraldssyni, eiganda Úrval Útsýn.

Pálmi greiðir Eiríki fyrir viðvik og sá síðarnefndi tekur það hvergi fram.
Annaðhvort það eða að Eiríkur Jónsson, sem aldrei hefur snert golfkylfu á sinni lífstíð, er allt í einu orðinn heitasti golfáhugamaður landsins.
Margir hrifnir af óhefðbundnum skrifum Eiríks gegnum tíðina. Álíka margir óhrifnir eins og gengur. Karl hætti hjá Séð og heyrt þar sem hann mátti ekki reka eigin vefmiðil á sama tíma. Kúdos fyrir að standa í lappirnar en verra að auglýsa svo okurferðir Úrval Útsýn í staðinn og það án þess að tiltaka á neinn hátt að um greidda kynningu sé að ræða.

Þetta heitir auglýsing en ekki frétt eða fregn eða tíðindi eða molar eða hvað Eiríkur kallar skrif sín. Hvers vegna maður sem veit ekki hvað fugl er á golfmáli ætti allt í einu að vera yfir sig hrifinn af rándýrri golfferð hjá tiltekinni ferðaskrifstofu segir allt sem segja þarf. Þetta er greitt efni. En gamli blaðamaðurinn of latur til að taka fram að um auglýsingu sé að ræða.
Lélegt í meira lagi! Ekki láta platast af ferðinni atarna. Hún jafn mikið okur og flest annað hjá Úrval Útsýn.







