Tilvalin jólagjöf, lúxus ævintýraferð, einstakt kynningarverð. Svo auglýsir Úrval Útsýn ferð til Dúbaí í marsmánuði. Ferð sem er 300 þúsund krónum of dýr.

Þegar þetta er skrifað hafa yfir tólf þúsund manns skoðað „tilboð“ Úrval Útsýn til Dúbaí í marsmánuði 2017. Þar af tæplega 50 sem virðast yfir sig hrifnir af þessu „flotta tilboði“ ef marka má fésbókarsíðu þessarar ferðaskrifstofu í eigu svindlarans Pálma Haraldssonar. Þar um að ræða tvo vikulanga túra og gist á lúxushótelinu Atlantis. Ekkert innifalið og ekki einu sinni íslenskur fararstjóri ef marka má að allir skoðunartúrar í borginni eru með enskumælandi fararstjóra.

Ekki aðeins er um okurpakka að ræða heldur og blekkir ferðaskrifstofan lesendur duglega eins og sjá má hér að ofan. Þar kemur hvergi fram að umrætt verð, 199.900 krónur á mann, gildi aðeins um tvo fullorðna og tvö börn!  Langi hjónum eða pari í túrinn er verðmiðinn allt annar og hærri eða 581.600 krónur samtals, ekki tæplega 400 þúsund eins og skilja má af auglýsingu Úrval Útsýn.

Það kann vel að vera að einhverjir Íslendingar þarna úti þekki ekki haus né sporð á ferðavefnum Fararheill. Sá hefur um átta ára skeið sparað lesendum sínum hundruð þúsunda króna á ferðum og ferðalögum um heim allan. Og það gerum við aftur nú.

Umrædd „lúxus ævintýraferð“ Úrval Útsýn er í boði annars vegar 14.- 21. mars og hins vegar 22. – 29. mars. Millilent er í London og allt flug með British Airways. Heildarverð fyrir tvo fullorðna og tvö börn er í báðum tilvikum 803.200 krónur.

Með því að græja nákvæmlega sömu ferð sjálf í stað þess að setja peninga í vasa Pálma Haraldssonar sparar viðkomandi fjölskylda sér tæplega ÞRJÚ HUNDRUÐ ÞÚSUND KRÓNUR.

Það gerum við með því að bóka flug með Wow Air til London 14. mars og heim aftur 21. mars. Kostnaðurinn hjá tveimur fullorðnum og tveimur börnum með tvær töskur meðferðis er þegar þetta er skrifað alls 69.667 krónur.

Nú er það svo að Wow Air flýgur til Gatwick flugvallar en ekki Heathrow eins og British Airways en þaðan flýgur hið síðarnefnda einnig áfram til Dúbaí. Við erum því sniðug, sleppum þriggja stunda veseni milli flugvalla og hendum British Airways alfarið fyrir róða. Við förum með Emirates flugfélaginu beint frá Gatwick. Ekkert stress og betra flugfélag líka.

Á vef Emirates finnst flug frá London og til London aftur umræddar dagsetningar, og taska og matur innifalinn, fyrir fjölskylduna niður í 150.300 krónur alls og nægur tími til að ná útflugi frá Keflavík og heimflugi til Íslands frá London.

Þá erum við komin með flugið og það vandræðalítið fyrir alls tæplega 220 þúsund krónur alls. Þá skottumst við yfir á hótelbókunarvef Fararheill og finnum gistingu á Atlantis í Dúbaí 14. – 21. mars í herbergi fyrir fjóra.

Þá finnum við þetta:

Hér um óafturkræft tilboð að ræða sem merkir að það er engin endurgreiðsla í neinum tilfellum. En fjölskyldan er jú hörð á því að eyða viku hér svo það skiptir engu. Verðmiðinn fyrir fjögurra manna íbúð í Atlantis-hótelinu í Dúbaí þessa dagsetningu er alls 294.076 krónur. Við gætum líka bókað gistingu með fyrirvara um að hætta við en þá pungum við út að lágmarki 313 þúsund krónur. En við erum viss í okkar sök.

Sem þýðir, ef við leggjum nú saman eins og í barnaskólanum í denn, að lúxuspakkinn sem Úrval Útsýn selur á rúmar 800 þúsund krónur kostar okkur heilar 514.054 krónur.

VIÐ SPÖRUM OKKUR 290 ÞÚSUND KRÓNUR!!!

Ekki láta fífla þig 😉