Ef mark er takandi á yfirvöldum í Flórídaríki í Bandaríkjunum heyra zika-vandamál sögunni til. Ekkert er að óttast lengur. Það stemmir þó ekki alveg við upplýsingar innanríkisráðuneytis Bandaríkjanna.

Zika-veiran heldur áfram að breiðast út í Bandaríkjunum þrátt fyrir fregnir þess efnis að hættan sé að mestu liðin hjá.

Það er æði freistandi fyrir Flórídaríki að koma þeim skilaboðum á framfæri að zika-veiran, sem berst með tiltekinni tegund moskítóflugna og veldur höfuðrýrnun hjá fóstrum í móðurkviði, sé ekki lengur vandamál. Allir helstu fjölmiðlar grípa það umhugsunarlaust og glansinn leikur á ný um nafn fylkisins.

Auðvitað vilja yfirvöld í Flórída ekki gefa allar upplýsingar. Það er jú ekki spennandi fyrir ferðafólk að vita af öðru en allt sé í þessu góða og þar sem ferðaiðnaðurinn er einn stærsti bransinn í ríkinu getur skipt sköpum að hræða ekki hræðu með því að segja ekki allan sannleikann.

Innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna er þó ekki bundið af öðru en almannaheill. Þar kemur skýrt fram að síðast á miðvikudag hafi verið skráð nýtt tilfelli zika-sýkingar í Flórídaríki.

Ekki svo að skilja að um stórfellt vandamál sé að ræða. Heildarfjöldi skráðra tilfella í Flórída er ennþá aðeins rétt ofan við þúsund tilvik sem er ekki mikið í stóru, fjölmennu fylki. En moskítóflugur fara ekki í manngreinarálit og fyrir þá þúsund einstaklinga sem sýktir eru verður lífið eftirleiðis töluvert flóknara en áður.

Með þessu er Fararheill ekki að benda fólki á að fara annað en til Flórída ef sá gállinn er á fólki. Aðeins að hafa í huga að för þangað getur haft í för með sér meiri hættu en flestir aðrir staðir.

Ágætt er fyrir Flórída-elskendur að fylgjast með zika-talningu dagblaðsins Miami Herald hér. Þar færð til bókar öll þekkt tilfelli zika-veirunnar í Flórídafylki öllu. Allur er varinn góður.