Gleðjast nú Egyptar. Innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur nú tekið Egyptaland af lista þjóða sem talið er varhugavert að heimsækja fyrir ferðafólk.

Ráðlegt talið að heimsækja Egyptaland á nýjan leik.

Ráðlegt talið að heimsækja Egyptaland á nýjan leik.

Viðvaranir eru enn í gildi um ferðir til landsins hjá velflestum evrópskum þjóðum og ekki síst Bretum sem þessi dægrin eru jafnvel hræddir við skuggann af sjálfum sér.

Við hjá Fararheill tökum þó þann pól í hæð að taka mark á bandaríska ráðuneytinu þó ekki sé nema vegna þess að engin önnur þjóð hefur slíkt net njósnara, flugumanna og eftirlitsstofnanna sem Bandaríkjamenn. Sé eitthvað varhugavert við að sóla sig í Egyptalandi veit Kaninn af því langt á undan öðrum.

Það má því á nýjan leik fara að skipuleggja siglingu upp eða niður Níl eða köfun meðfram strönd Rauðahafsins án þess að hafa áhyggjur sýknt og heilagt. Ágætt að muna að ferðamannaiðnaðurinn í landinu tók 80% dýfu eftir að flugskeyti grandaði rússneskri farþegaþotu í Egyptalandi fyrir rúmu ári síðan. Og þar sem eins dauði er annars brauð þýðir það að ferðir til landsins kosta skid og ingenting.